Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Sindri Sverrisson skrifar 27. maí 2026 22:47 Dean Henderson tók við glæsilegum verðlaunagripnum sem fyrirliði í kvöld. Getty/Adam Davy Crystal Palace-menn voru í skýjunum eftir sigurinn gegn Rayo Vallecano í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í kvöld og fá nú loks að spila í keppninni sem þeim var bannað að spila í á þessari leiktíð.
Palace vann verðskuldaðan 1-0 sigur í kvöld með marki Jean-Philippe Mateta og fagnaði því þar með sínum öðrum titli á einu ári, eftir að hafa einnig orðið enskur bikarmeistari í fyrra. Þetta eru fyrstu stóru titlarnir í sögu félagsins. Oliver Glasner, sem nú kveður Palace, fékk hins vegar ekki að stýra Palace í Evrópudeildinni í vetur eins og bikarmeistararnir áttu skilið því liðinu var bannað að fara í keppnina vegna þess að Lyon, þá í eigu sama aðila, var einnig í keppninni. Þess vegna var Palace sent í Sambandsdeildina en með því að vinna hana þá fær liðið að spila í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Enn á hlaupum í sextugasta leiknum „Þessir strákar koma mér alltaf á óvart. Þetta var mjög sérstakt kvöld. Þetta var sextugasti leikurinn á tímabilinu hjá okkur og þessir gaurar hafa verið á hlaupum alla leiktíðina. Við höfum átt erfiða kafla en á kvöldum eins og þessum þá hafa strákarnir gert allt sem til þarf,“ sagði Dean Henderson, markvörður Palace, í beinni útsendingu TNT Sports. „Þetta eru einstök augnablik með einstöku fólki og minningarnar lifa að eilífu. Ég er bara að reyna að ná þessu öllu saman. Það eru alls konar tilfinningar í gangi og þung byrði farin af herðunum því maður vill standa sig í svona leikjum og ég efaðist ekki um að strákarnir myndu gera það. Besta liðið verskuldar að sigra. Við fáum núna aftur það sem við verðskulduðum eftir síðasta tímabil. Þetta er ævintýri. Stjórinn hefur verið ótrúlegur og á skilið að kveðja svona. Þetta átti að enda svona,“ sagði Henderson en Glasner tilkynnti þegar í janúar að hann myndi hætta með Palace eftir tímabilið. Sjálfur var stjórinn hæstánægður með sína menn í kveðjuleiknum: „Leikurinn var eins og við bjuggumst við en mér finnst við hafa spilað ótrúlegar 15 mínútur eftir hálfleik. Við vörðumst svo vel í lokin. Frábært kvöld, þessi hópur leikmanna og stuðningsmanna á það skilið,“ sagði Glasner og hélt áfram: „Ég sé sjálfan mig sem hluta af hópnum. Sem stjóri getur maður ekkert gert einn. Maður þarf frábært starfslið og sérstaklega þarf maður frábæra leikmenn og fólk. Það er það sem þessi hópur er. Þeir standa alltaf saman og leggja hart að sér. Frá fyrsta degi höfum við skapað það hugarfar að allt sé mögulegt ef maður leggur hart að sér. Á endanum er það ábyrgð leikmannanna að nýta sér allt sem þeim býðst. Á mánudaginn var held ég 34 stiga hiti í London – ég held ég hafi farið klukkan 17:00, JP [Mateta] og Mitchell voru þá nýkomnir úr kuldaklefanum. Það sýnir hugarfar leikmannanna; þeir leggja svo mikið á sig og þess vegna getum við lyft öðrum bikar,“ sagði Glasner.
Enski boltinn Crystal Palace FC Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Fleiri fréttir Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Sjá meira