Hvað ætlar þú að verða? Rannveig Sverrisdóttir skrifar 28. maí 2026 07:02 Nú er vorboðinn ljúfi, hvítu kollarnir, kominn á kreik. Nýstúdentar, ungt fólk í blóma lífsins sem stendur á tímamótum og þarf von bráðar að taka ákvörðun um næstu skref í lífinu. Spurningin „hvað svo?“ glymur í eyrum þeirra í stúdentsveislum og öðrum samkomum. Ættingjar og vinir vilja vita hvað þau ætla að verða þegar þau verða stór. Þrátt fyrir neikvæða umræðu um íslenska skólakerfið og menntun barnanna okkar þá vil ég meina að ungt fólk í dag sé frábært. Hæfileikaríkt, skapandi, duglegt og kraftmikið. Það býr almennt yfir mörgum kostum sem mína kynslóð skorti. Ég sé þetta ekki bara í unga fólkinu í mínu nærumhverfi heldur er ég svo heppin að fá að taka á móti ungu fólki sem velur sér nám í hugvísindum að loknum framhaldsskóla. Ekkert starf er að mínu mati jafn gefandi og kennarastarf og forréttindi að fá að taka þátt í menntun okkar góðu ungmenna og uppgötva alla þeirra mannkosti. Unga fólkið þarf að takast á við aðrar áskoranir en við sem eldri erum og þess vegna er mikilvægt að skólakerfið búi þau undir framtíð sem er óljós. Í dag er það ekki eingöngu þekking sem þarf að afla sér heldur jafnframt, eða miklu frekar, hæfni til að takast á við þann síbreytilega heim sem bíður . Flókið – já, en spennandi að sama skapi. Í breyttum heimi og aukinni fjölbreytni í samfélögum okkar felast bæði tækifæri og áskoranir. Gervigreindin og tækninýjungar, alþjóðavæðing og fjölmenning, heimurinn er undir og tækifærin endalaus. Aldrei fyrr hefur þverfræðileiki verið mikilvægari, að tileinka sér þekkingu og hæfni sem einskorðast ekki við eitt svið heldur mörg. Að geta yfirfært það sem þú lærir yfir á önnur svið. Það var gæfa mín fyrir mörgum árum að kynnast íslensku táknmáli og fræðasviði sem það tilheyrir. Hefði mér dottið í hug þegar ég setti upp hvíta kollinn að þetta yrði ævistarf mitt? Aldrei. Og aldrei hefði ég getað giskað á þann lærdóm sem ég hef dregið af því að vinna með tungumál mjög ólíkt mínu og menningarheim sem því tengist. Ólíkt því sem margir halda er ekki til eitt alþjóðlegt táknmál heldur skipta þau hundruðum. Af hverju? Af því að tungumál eru bundinn menningu og fólkinu sem það talar og samræming eða stöðlun „á heimsvísu“ er ómöguleg. Það er einmitt fegurðin í tungumálum, þau eru lifandi, skapandi og í stöðugri þróun, allt í senn. Íslenskt táknmál er einstakt, ekki eins og neitt annað táknmál þó skyldleiki sé til staðar. Og um það fjallar ein námsgrein á Hugvísindasviði HÍ, táknmálsfræði og táknmálstúlkun. Íslenskt táknmál er fyrsta mál döff Íslendinga, málminnihluta sem er partur af íslenskri sögu og menningu sem alltof fáir þekkja. Þessu þarf að breyta, ekki síst vegna þess að allir græða á því að byggt sé á styrkleikum hvers og eins í samfélaginu, auk þess sem það opnar margar dyr að kynnast annarri menningu. Að baki hverju tungumál býr sérstakur menningarheimur og að læra um einn ólíkan okkar, kennir okkur að við erum mismunandi. Við öðlumst að sama skapi hæfni til að aðlagast fleiri menningarheimum. Hvað ætlar þú að verða kæri nýstúdent? Eða hvernig ætlar þú að verða? Vonandi finna allir sína hillu og nám við hæfi sem býr hvert og eitt undir framtíðina, bæði í lífi og starfi. Hvert það svo leiðir þig, það kemur í ljós. Höfundur er táknmálsfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar