Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. maí 2026 12:58 Garðar Stefánsson forstjóri Rapyd á Íslandi. Um fjörutíu manns hefur verið sagt upp hjá Rapyd á Íslandi. Ástæðan eru skipulagsbreytingar á alþjóðavísu en gervigreind á að leysa af hólmi fjölda starfsmanna, miðað við bréf forstjóra alþjóðasamsteypunnar til starfsmanna. Þetta herma heimildir fréttastofu. Garðar Stefánsson forstjóri Rapyd á Íslandi segir í skriflegu svari til Vísis að í dag hafi verið gerðar skipulagsbreytingar hjá Rapyd á alþjóðavísu. „Samhliða alþjóðlegum framförum í gervigreind og sjálfvirknivæðingu, verður Rapyd áfram skuldbundið íslenska markaðnum. Á Íslandi erum við með einstaklega öflugan hóp, rúmlega 120 starfsmenn, sem munu áfram stýra, byggja upp og þróa nýjar fjártæknilausnir fyrir okkar mikilvægu innlendu viðskiptavini sem og þau alþjóðlegu fyrirtæki sem við þjónustum. Undir þessu nýja og nútímavædda rekstrarlíkani munu viðskiptavinir okkar njóta góðs af nýjum lausnum, hraðari innleiðingu og meira rekstraröryggi.“ Garðar segist ennfremur ekki ætla að tjá sig frekar að svo stöddu og þá ekki um fjölda starfsmanna sem sagt var upp. Rapyd nú fyrirtæki gervigreindar Í bréfi Arik Shtilman forstjóra Rapyd á heimsvísu til starfsmanna, meðal annars hér á landi, sem Vísir hefur undir höndum eru breytingarnar raktar til innleiðingar á gervigreind. Boðar hann til starfsmannafundar 2. júní vegna málsins. Það sé ekki markmið fyrirtækisins að vera rekið af gervigreind, það sé veruleiki dagsins í dag. „Með því að innleiða gervigreind sem miðlægt kerfi sem stýrir alþjóðlegri starfsemi okkar höfum við gjörbreytt því hvernig verk eru unnin. Þessi þróun gerir okkur kleift að starfa hraðar, auka nákvæmni og skila betri árangri fyrir viðskiptavini okkar á sama tíma og við vöxum hratt og með hagnaði.“ Arik Shtilman, forstjóri og stofnandi Rapyd. Hann segir að staða Rapyd sé sterk, fyrirtækið sé arðbært. Staða Rapyd er sterk. Fyrirtækið er vaxandi og arðbært. Stjórnendur séu að taka meðvitaða ákvörðun um að endurúthluta fjármunum í í gervigreind sem muni knýja áfram næsta vaxtarskeið fyrirtækisins. „Starfsfólki sem verður fyrir áhrifum verður tilkynnt um það í dag. Þessar ákvarðanir endurspegla ekki hæfileika þeirra eða framlag og við erum staðráðin í að styðja þau af virðingu í gegnum þessar breytingar. Til ykkar sem eftir eruð, þá geri ég mér grein fyrir að þetta skapar óvissu. Stefna okkar er hins vegar skýr. Við erum að byggja upp skilvirkustu vélina í fjártækni, sameinað, gervigreindardrifið fyrirtæki sem er í stakk búið til að stækka og sigra.“ Bréf Arik Shtilman á upprunalegu tungumáli, ensku: Team, Today we are restructuring Rapyd to align with a fundamental shift in our business model: Rapyd is now a company operated by AI. This is not a future goal; it is our current reality. By embedding AI as the centralized system that runs our global operations, we have fundamentally changed how work gets done. This evolution allows us to operate faster, improve accuracy, and deliver better outcomes for our customers while growing rapidly and profitably. Rapyd is in a strong position. The company is growing and profitable. We are making a deliberate choice to reallocate our resources into our platform capabilities and AI investments that will drive our next phase of growth. Impacted employees are being notified today. These decisions are not a reflection of their talent or contributions, and we are committed to supporting them through this transition with respect. For those remaining, I recognize this creates uncertainty. Our direction, however, is clear. We are building the most efficient engine in fintech - a unified, AI-driven organization equipped to scale and win. We will hold a company-wide town hall Tuesday, June 2 to discuss what comes next. Arik Vinnumarkaður Greiðslumiðlun Gervigreind Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira
Þetta herma heimildir fréttastofu. Garðar Stefánsson forstjóri Rapyd á Íslandi segir í skriflegu svari til Vísis að í dag hafi verið gerðar skipulagsbreytingar hjá Rapyd á alþjóðavísu. „Samhliða alþjóðlegum framförum í gervigreind og sjálfvirknivæðingu, verður Rapyd áfram skuldbundið íslenska markaðnum. Á Íslandi erum við með einstaklega öflugan hóp, rúmlega 120 starfsmenn, sem munu áfram stýra, byggja upp og þróa nýjar fjártæknilausnir fyrir okkar mikilvægu innlendu viðskiptavini sem og þau alþjóðlegu fyrirtæki sem við þjónustum. Undir þessu nýja og nútímavædda rekstrarlíkani munu viðskiptavinir okkar njóta góðs af nýjum lausnum, hraðari innleiðingu og meira rekstraröryggi.“ Garðar segist ennfremur ekki ætla að tjá sig frekar að svo stöddu og þá ekki um fjölda starfsmanna sem sagt var upp. Rapyd nú fyrirtæki gervigreindar Í bréfi Arik Shtilman forstjóra Rapyd á heimsvísu til starfsmanna, meðal annars hér á landi, sem Vísir hefur undir höndum eru breytingarnar raktar til innleiðingar á gervigreind. Boðar hann til starfsmannafundar 2. júní vegna málsins. Það sé ekki markmið fyrirtækisins að vera rekið af gervigreind, það sé veruleiki dagsins í dag. „Með því að innleiða gervigreind sem miðlægt kerfi sem stýrir alþjóðlegri starfsemi okkar höfum við gjörbreytt því hvernig verk eru unnin. Þessi þróun gerir okkur kleift að starfa hraðar, auka nákvæmni og skila betri árangri fyrir viðskiptavini okkar á sama tíma og við vöxum hratt og með hagnaði.“ Arik Shtilman, forstjóri og stofnandi Rapyd. Hann segir að staða Rapyd sé sterk, fyrirtækið sé arðbært. Staða Rapyd er sterk. Fyrirtækið er vaxandi og arðbært. Stjórnendur séu að taka meðvitaða ákvörðun um að endurúthluta fjármunum í í gervigreind sem muni knýja áfram næsta vaxtarskeið fyrirtækisins. „Starfsfólki sem verður fyrir áhrifum verður tilkynnt um það í dag. Þessar ákvarðanir endurspegla ekki hæfileika þeirra eða framlag og við erum staðráðin í að styðja þau af virðingu í gegnum þessar breytingar. Til ykkar sem eftir eruð, þá geri ég mér grein fyrir að þetta skapar óvissu. Stefna okkar er hins vegar skýr. Við erum að byggja upp skilvirkustu vélina í fjártækni, sameinað, gervigreindardrifið fyrirtæki sem er í stakk búið til að stækka og sigra.“ Bréf Arik Shtilman á upprunalegu tungumáli, ensku: Team, Today we are restructuring Rapyd to align with a fundamental shift in our business model: Rapyd is now a company operated by AI. This is not a future goal; it is our current reality. By embedding AI as the centralized system that runs our global operations, we have fundamentally changed how work gets done. This evolution allows us to operate faster, improve accuracy, and deliver better outcomes for our customers while growing rapidly and profitably. Rapyd is in a strong position. The company is growing and profitable. We are making a deliberate choice to reallocate our resources into our platform capabilities and AI investments that will drive our next phase of growth. Impacted employees are being notified today. These decisions are not a reflection of their talent or contributions, and we are committed to supporting them through this transition with respect. For those remaining, I recognize this creates uncertainty. Our direction, however, is clear. We are building the most efficient engine in fintech - a unified, AI-driven organization equipped to scale and win. We will hold a company-wide town hall Tuesday, June 2 to discuss what comes next. Arik
Bréf Arik Shtilman á upprunalegu tungumáli, ensku: Team, Today we are restructuring Rapyd to align with a fundamental shift in our business model: Rapyd is now a company operated by AI. This is not a future goal; it is our current reality. By embedding AI as the centralized system that runs our global operations, we have fundamentally changed how work gets done. This evolution allows us to operate faster, improve accuracy, and deliver better outcomes for our customers while growing rapidly and profitably. Rapyd is in a strong position. The company is growing and profitable. We are making a deliberate choice to reallocate our resources into our platform capabilities and AI investments that will drive our next phase of growth. Impacted employees are being notified today. These decisions are not a reflection of their talent or contributions, and we are committed to supporting them through this transition with respect. For those remaining, I recognize this creates uncertainty. Our direction, however, is clear. We are building the most efficient engine in fintech - a unified, AI-driven organization equipped to scale and win. We will hold a company-wide town hall Tuesday, June 2 to discuss what comes next. Arik
Vinnumarkaður Greiðslumiðlun Gervigreind Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira