Milner hættur í fótbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 08:33 James Milner bætti leikjametið sem leikmaður Brighton & Hove Albion en hann lék fimm leikjum fleiri en Gareth Barry í ensku úrvalsdeildinni. Getty/Robin Jones Enski knattspyrnumaðurinn James Milner hefur tilkynnt að fótboltaskórnir hans séu komnir upp á hillu en þessi fertugi leikmaður bætti leikjametið á nýlokinni leiktíð.
Miðjumaður Brighton varð leikjahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa slegið met Gareth Barry. Milner tilkynnti á samfélagsmiðlum sínum í dag að skórnir fari nú upp á hillu. „Eftir 24 tímabil í ensku úrvalsdeildinni finnst mér rétti tíminn vera kominn til að binda enda á feril minn sem leikmaður,“ skrifaði Milner. Hann lék alls 658 leiki í ensku úrvalsdeildinni. „Frá því að ég lék minn fyrsta leik fyrir Leeds, liðið sem ég studdi í æsku, 16 ára gamall og varð yngsti markaskorari ensku úrvalsdeildarinnar, hefði mig aldrei getað dreymt um það ferðalag sem ég hef farið, allt þar til ég gat ekki lyft fætinum á síðasta ári og kom svo til baka til að vera hluti af því þegar Brighton komst í Evrópukeppni í annað sinn í sögu félagsins, 40 ára gamall,“ skrifaði Milner. „Það hafa verið ótrúleg forréttindi að hafa spilað fyrir Newcastle, Aston Villa, Man City, Liverpool og Brighton – og svo má ekki gleyma eftirminnilegum mánuði hjá Swindon Town,“ skrifaði Milner. „Hvert félag hefur gegnt stóru hlutverki í lífi mínu og á ferlinum og ég vil þakka öllum sem komu að þessu – eigendum, starfsfólki, þjálfurum, liðsfélögum og stuðningsmönnum sem tóku vel á móti mér og hjálpuðu mér á leiðinni,“ skrifaði Milner. View this post on Instagram A post shared by James Milner (@jamesmilnerofficial)
Enski boltinn Brighton & Hove Albion Liverpool FC Leeds United Manchester City Aston Villa FC Newcastle United Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Fótbolti Fleiri fréttir Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Sjá meira