Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Bjarki Sigurðsson skrifar 5. júní 2026 12:41 Ari Skúlason er formaður og framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. SSF Formaður Samtaka starfsmanna í fjármálaþjónustu segir skilaboð Kviku banka til starfsfólks skýr eftir að félagið greiddi milljarða í arð sama dag og ellefu var sagt upp. Botnlaus gróðafýsn stjórni ansi miklu í samfélaginu í dag. Forstjóri Kviku segir engin tengsl milli uppsagna og arðgreiðslu.
Kvika banki sagði í gær upp ellefu starfsmönnum í hagræðingaraðgerðum. Samdægurs fór fram hluthafafundur félagsins þar sem tillaga stjórnar um að greiða rúma tíu milljarða króna í arð var samþykkt. Frá byrjun 2025 hefur bankinn greitt hluthöfum tæpa 39 milljarða í arð. Ari Skúlason, formaður og framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir tilkynningu Kviku óvenju skýra. „Skilaboðin eru þau að árangurinn er frábær, starfsfólkið hefur skapað mjög góðan hagnað en hann á allur að fara til fjárfesta og við ætlum að fjárfesta. Þannig þetta er köld kveðja. Upp á síðkastið hefur verið í tísku hjá fjármálafyrirtækjum að bera fyrir sig gervigreind og þróun gervigreindar við uppsagnir eins og það sé sjálfsagt að segja upp vegna þess, samanborið við uppsagnir Rapyd í síðustu viku. Það er ekkert svoleiðis hjá Kviku, það er bara þannig að það gengur vel og þeir ætla að láta fjárfestana fá allt sem er skapað,“ segir Ari. Leitað til samtakanna Starfsmennirnir skapi verðmætin. „Þetta er svolítið merki um hvar heimurinn er staddur í dag. Það er þessi botnlausa gróðafýsn sem stjórnar ansi miklu. Við upplifum það mjög mikið á fjármálamarkaði,“ segir Ari. Starfsmenn Kviku sem sagt var upp hafa leitað til samtakanna. „Alveg strax, sko. Eins með Rapyd og Íslandsbanka. Sérstaklega með Rapyd, því það var stór uppsögn og kom óvænt,“ segir Ari. Engin tenging Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, kvaðst ekki geta veitt símaviðtal og óskaði eftir spurningum skriflega. Í svörum við þeim segir hann uppsagnirnar sársaukafullar og að allir í bankanum séu leiðir yfir því að kveðja góða félaga. Engin tenging sé milli arðgreiðslu gærdagsins og uppsagnanna. Arðgreiðslan sé vegna þess að eiginfjárstaða bankans hafi verið langt umfram kröfur eftirlitsaðila í kjölfar sölu Kviku á TM í fyrra og minni eiginfjárbindingar lánasafns. Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku.Aðsend
Kvika banki Fjármálafyrirtæki Vinnumarkaður Stéttarfélög Gervigreind Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira