Innlent

Á­hyggjur Barna­heilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar hefjast klukkan 12:00.
Hádegisfréttir Bylgjunnar hefjast klukkan 12:00.

Framkvæmdastjóri Barnaheilla segir það mikil mistök verði frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð á landamærum að lögum. Engar breytingar hafi orðið á stöðu barna við meðferð málsins í nefnd. Tvö ár eru síðan formaður Viðreisnar sagði að flokkurinn myndi aldrei setja börn í lokuð búsetuúrræði.

Tveir voru handteknir í aðgerðum lögreglu og sérsveitar á Akureyri í gærkvöld. Rannsókn málsins er á viðkvæmu stigi.

Ríkissáttasemjari á ekki von á því að fundað verði í deilu Icelandair og flugmanna fyrr en eftir helgi. Allar flugferðir félagsins virðast á áætlun í dag.

Þá hitum við upp fyrir sjómannadaginn og ræðum við lungnalækni um veikindi krónprinsessu Noregs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×