Handbolti

Valskonur styrkja sig

Valur Páll Eiríksson skrifar
Britney Cots kemur til Vals frá ÍBV. Hún hefur spilað hér á landi síðan árið 2018.
Britney Cots kemur til Vals frá ÍBV. Hún hefur spilað hér á landi síðan árið 2018. Mynd/Valur

Íslandsmeistarar Vals voru ekki lengi að styrkja sig fyrir komandi átök næsta vetrar í Olís-deild kvenna. Britney Cots kemur til liðsins frá ÍBV.

Cots var lykilmaður hjá liði ÍBV, þá sérstaklega varnarlega, er það komst alla leið í úrslitaeinvígið en tapaði þar 3-1 fyrir Val sem tryggði titilinn í Eyjum. Eftir að hafa horft á Valskonur fagna titlinum á eigin heimavelli hefur Cots nú fært sig yfir á Hlíðarenda eftir góð ár í Eyjum.

Cots hefur spilað hér á landi frá árinu 2018, með FH, Stjörnunni og nú síðast ÍBV. Valur bætist nú við þann lista.

„Ég er gríðarlega ánægður með að fá Britney til liðs við félagið. Hún kemur inn í hópinn með mikla reynslu og gæði sem mun nýtast liðinu vel á komandi tímabili. Ég er spenntur fyrir samstarfinu og mun hún passa vel inn í okkar hóp,“ er haft eftir Antoni Rúnarssyni, þjálfara Vals, í yfirlýsingu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×