Körfubolti

Baulað á Trump í New York

Andri Broddason skrifar
Donald Trump horfði á leik New York Knicks og San Antonio Spurs bakvið glerhjúp.
Donald Trump horfði á leik New York Knicks og San Antonio Spurs bakvið glerhjúp. Samuel Corum/Getty Images

Donald Trump hafði óvænt áhrif á umhverfi Madison Square Garden þegar þriðji leikur í úrslitum NBA fór fram. Baulað var á forsetann á meðan þjóðsöngurinn var sunginn.

Mikil spenna var í kringum Madison Square Garden í nótt þegar þriðji leikur úrslitaeinvígis New York Knicks og San Antonio Spurs fór fram þar í gær. Þetta er fyrsti úrslitaleikur NBA í New York í meira en 25 ár og því skiljanlega mikill spenningur á meðal borgarbúa.

Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur haldið með Knicks frá því hann var lítill og mætti á leikinn til að styðja sitt lið. Ekki voru þó allir sáttir með hann á vellinum því baulað var á hann þegar hann birtist á skjá leiksins í miðjum þjóðsöng. Hann er fyrsti sitjandi forseti Bandaríkjanna sem mætir á úrslitaleik NBA.

Trump var á leiknum með barnabarni sínu og eiganda Knicks, James Dolan. Með Trump fylgdi aragrúi af öryggisvörðum og var svæðið þar sem hann sat hjúpað öryggisgleri.

Að Trump hafi mætt á leikinn hafði mikil áhrif á umhverfi vallarins þar sem loka þurfti svæðinu í kringum Madison Square Garden. Það gerði það að verkum að ekki var hægt að sýna leikinn fyrir utan og fólk átti erfiðara með að koma saman til að njóta þess að horfa á liðið sitt spila.

Íbúum New York fannst óþægilegt hvað koma Trump hafði raskað miklu í borginni á meðan leikurinn var í gangi. Íbúarnir sýndu óánægju sína með því að baula á hann þegar Trump var í mynd.

Hér að neðan má sjá nokkur myndbönd sem sýna baulið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×