Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Agnar Már Másson skrifar 9. júní 2026 13:57 Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent í verði. Samsett Mynd Hækkandi ál- og olíuverð er farið að skila sér í verðhækkunum á mat- og drykkjarvöru, að sögn framkvæmdastjóra Ölgerðarinnar en félagið tilkynnti nýlega um verðhækkanir á öllum sínum framleiðsluvörum, svo sem gosdrykkjum. Rekstrarumhverfið sé orðið krefjandi en hann sé áfram bjartsýnn.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson tilkynnti viðskiptavinum sínum á föstudag að hún hygðist hækka verð á framleiðsluvörum sínum um 0,8–2,1 prósent og taka breytingarnar gildi í júlí. Óli Rúnar Jónsson, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar, segir við Vísi að hækkunin sé til komin vegna hækkandi olíu- og álverðs í heiminum, sem átök í Mið-Austurlöndunum og einkum lokun Hormússunds hafa valdið enda er Persaflóinn ein helsta flutningsleið heims fyrir bæði olíu og ál. Mánuðinn fyrir árásirnar fóru að meðaltali um 129 skip um Hormússund á dag, en eftir að átökin hófust lokaðist nánast alveg fyrir skipaumferð. Óli Rúnar Jónsson er framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar.Aðsend „Olíuverð hefur annars vegar áhrif til hækkunar á flutningsverði til landsins, og skilar sér þannig inn. Og svo eru þetta óbein áhrif á plastið, allar umbúðir sem eru í plasti, hvort sem það eru flöskur, ytri pakkningar eða annað, þá er þetta allt mjög háð olíuverði.“ Allar framleiðsluvörur félagsins hækkuðu að lágmarki um 0,8 prósent en vörur í dós hækkuðu aftur á móti um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent í verði. „Við erum að taka hluta á okkur en þetta er bara það sem við verðum að skila út. Svo eru vörur bara misviðkvæmar fyrir þessum hækkandi kostnaðarháttum og þess vegna er álagningin misjöfn,“ segir hann. „Við erum alltaf háð þessum flutningi en svo eru vörur þar sem ál- og plastumbúðir eru stærri þáttur af kostnaðinum.“ Óli Rúnar segir að allar sínar dósir séu innfluttar enda engar slíkar framleiddar á Íslandi. Erfitt er að sjá fyrir hvenær óvissu um olíuverð muni linna. „Óvissa er svolítið orðin í þessu. En heilt yfir erum við bjartsýnir,“ segir Óli og tekur fram að félagið hafi mörg spennandi verkefni í pípunum. „En það er alveg ljóst að til styttri tíma er umhverfið mjög krefjandi og verður eitthvað áfram.“ Uppfært: Í fyrri útgáfu fréttar kom fram að breytingarnar hefðu þegar tekið gildi en það er ekki rétt, heldur taka þær gildi í júlí.
Ölgerðin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Íran Bandaríkin Bensín og olía Áliðnaður Gosdrykkir Tengdar fréttir Ölgerðin hækkar verðin Ölgerðin hefur tilkynnt viðskiptavinum að hún ætli að hækka verð á framleiðsluvörum sínum. Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent en aðrar framleiðsluvörur um 0,8 prósent. 5. júní 2026 19:54 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Ölgerðin hækkar verðin Ölgerðin hefur tilkynnt viðskiptavinum að hún ætli að hækka verð á framleiðsluvörum sínum. Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent en aðrar framleiðsluvörur um 0,8 prósent. 5. júní 2026 19:54