Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Lovísa Arnardóttir skrifar 12. júní 2026 08:43 Róbert Ragnarsson skipaði annað sæti á lista Viðreisnar í kosningunum í maí. Vísir/Lýður Valberg Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að skipa stýrihóp um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, verður formaður hópsins og á hann að skila tillögum jafnóðum og þær eru til. Vinnu hópsins á að vera lokið um mitt kjörtímabil, 2028.
Í tillögu Hildar Björnsdóttur borgarstjóra kemur fram að markmið verkefnisins sé að gera „stjórnsýslu Reykjavíkurborgar, bæði miðlæga og á fag- og kjarnasviðum, skilvirkari, gagnsærri og þjónustumiðaðri, draga úr kostnaði við yfirbyggingu og nýta fjármuni borgarinnar betur“. Gert er ráð fyrir að þessum markmiðum verði náð með því að innleiða afmarkaðar og mælanlegar breytingar. Gert er ráð fyrir utanaðkomandi ráðgjöf og að innleiðingu verkefna verði lokið eigi síðar en í júní 2028. Stýrihópinn skipa Hildur Björnsdóttir borgarstjóri, Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar, Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs, Róbert Ragnarsson borgarfulltrúi sem verður formaður, Ari Edwald borgarfulltrúi Miðflokksins og Pétur H. Marteinsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Róbert var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hægt er að hlusta að neðan. Rekstur standi ekki undir nauðsynlegri fjárfestingu Í greinargerð tillögunnar kemur fram að Hildur telji brýnt að ráðast í róttækar breytingar á stjórnskipulagi og rekstri borgarinnar og nýta tíma og fjármuni betur með það að markmiði að bæta þjónustu. „Rekstur borgarinnar stendur ekki undir nauðsynlegri fjárfestingu og viðhaldi innviða. Kostnaður við miðlæga stjórnsýslu borgarinnar er hærri en landsmeðaltal og hærri en samanburður sveitarfélaga,“ segir í greinargerð og það sé nauðsynlegt að bæta rekstur borgarsjóðs. Stýrihópurinn hefur það hlutverk að kortleggja og leggja mat á fyrirliggjandi úttektir, greiningar og tillögur að breytingum á stjórnsýslu og rekstri borgarinnar. Stýrihópurinn á auk þess að leiða innleiðingu skipulagsbreytinga í stjórnsýslu borgarinnar ásamt sviðsstjórum og borgarritara. Stýrihópurinn ber svo ábyrgð á framgangi breytinganna í umboði borgarráðs, setur áherslur og forgangsröðun, fylgist með árangri gagnvart settum mælikvörðum og tryggir að innleiðingin styðji við markmið verkefnisins. Skila tillögum jafnóðum Verkefnið hefst í júní 2026 og innleiðingu lýkur í júní 2028. Gert er ráð fyrir árangursmælingum ársfjórðungslega samhliða birtingu ársreiknings hvers árs. Stýrihópurinn á samkvæmt tillögunni að leggja fram tillögur til borgarstjóra jafnóðum og þær eru tilbúnar til ákvarðanatöku og innleiðingar, í stað þess að bíða heildarniðurstöðu í lok verkefnisins. Í lok verkefnisins verður lagt mat á árangur þess. Með stýrihópunum mun starfa starfsmaður frá fjármála- og áhættustýringasviði en hópnum er heimilt að leita til ytri ráðgjafa vegna verkefnisins. Allir fulltrúar hefðu átt að fá fulltrúa Sanna Magdalena Mörtudóttir, áheyrnarfulltrúi Vinstrisins í borgarráði, lagði fram bókun á fundinum þar sem hún gagnrýndi að ekki væru fulltrúar frá öllum flokkum minnihlutans í hópnum. „Í jafn viðamiklu verkefni og þessu hefði farið betur á því að allir flokkar ættu fulltrúa í stýrihópnum. Hvað varðar fullyrðingar um að kostnaður við miðlæga stjórnsýslu borgarinnar sé hærri en landsmeðaltal og hærri en hjá öðrum sveitarfélögum er rétt að halda því til haga að það er ólíku saman að jafna hvernig sveitarfélög halda utan um reikningsskil sem gerir samanburðinn flóknari. Sem dæmi er stafræn uppbygging síðustu ára gjaldfærð miðlægt í Reykjavík en á síðasta ári nam hún 1,8 milljörðum. Reykjavíkurborg er langstærsta sveitarfélagið og höfuðborg landsmanna og sinnir hún mun víðtækari verkefnum og þjónustu en önnur sveitarfélög og þarf að taka tillit til þess í samanburðinum,“ segir Sanna í bókun sinni.
Reykjavík Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Samfylkingin Vinstrið Rekstur hins opinbera Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira