Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Eiður Þór Árnason skrifar 13. júní 2026 18:10 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra. Meiri stuðningur mælist meðal stuðningsfólks Viðreisnar og Samfylkingarinnar. Vísir/Anton Brink Fleiri eru hlynntir en andvígir því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið samkvæmt nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir DV. Alls sögðust 44,5 prósent svarenda vera hlynntir viðræðum en 39,4 prósent andvígir. Á sama tíma svöruðu 14,6 prósent veit ekki og 1,5 prósent vildu ekki svara.
Ef einungis er horft til þeirra sem tóku afstöðu sögðust 53,1 prósent vera jákvæðir en 46,9 prósent andvígir. Greint er frá niðurstöðunum í frétt DV. Þar kemur fram að lítill munur hafi verið milli kynja en nokkuð misjafnt var eftir aldurshópum. Mældist andstaða mest hjá fólki á aldrinum 70 ára og eldri. Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið fer fram 29. ágúst. Könnun Maskínu var framkvæmd 2. til 11. júní og voru svarendur 1.856 talsins. Þar af tóku 1.558 afstöðu. Könnun sem Gallup framkvæmdi nýlega fyrir Viðskiptablaðið gaf til kynna að minni stuðningur sé við inngöngu í Evrópusambandið en aðildarviðræður. Mældist þar meirihluti þeirra sem tóku afstöðu andvígur því að Ísland yrði hluti af Evrópusambandinu. Sögðust 39 prósent svarenda Gallup fylgjandi, 46 prósent andvíg og 16 prósent hvorki fylgjandi né andvígir aðild Íslands. Svipuð niðurstaða birtist þegar Gallup kannaði afstöðu til aðildar í byrjun apríl.
Skoðanakannanir Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Utanríkismál Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Innlent Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Fleiri fréttir Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Sjá meira