Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Kjartan Kjartansson skrifar 15. júní 2026 08:24 Sigrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, svarar gagnrýni Einars Bárðarsonar, framkvæmdastjóra SVEIT, á eftirlit lögreglu á skemmtistöðum. Vísir Eftirlit með starfsemi skemmistaða verður að stórum hluta sýndareftirlit ef það má aðeins fara fram utan háannatíma, að mati framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Talsmaður hagsmunaaðila gagnrýndi um helgina að lögregla hefði lokað skemmtistöðum um helgina.
Lögreglan og Skatturinn lokuðu þremur skemmtistöðum í Reykjavík og Hafnarfirði í tengslum við athugun á rekstrarleyfum og starfsleyfum öryggisþjónustu auk hugsanlegra skattalagabrota um helgina. Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, gagnrýndi að lögregla skyldi ráðast í aðgerðirnar á háannatíma skemmtistaðanna. Hann gerði þó ekki athugasemdir við sakargiftirnar heldur tímasetningu aðgerðanna þegar staðirnir séu í fullri starfsemi. Við þetta gerir Sigrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og ritari Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi, athugasemd í aðsendri grein á Vísi í morgun. „Leyfisskyld starfsemi á skemmtistöðum fer ekki fyrst og fremst fram klukkan tíu á þriðjudagsmorgni. Hún fer fram þegar gestir eru á staðnum, þegar áfengi er veitt, þegar dyraverðir eru við störf og þegar raunveruleg áhætta getur skapast. Ef eftirlit með dyravörslu, áfengisveitingum, opnunartíma eða öryggi má aðeins fara fram utan annatíma, þá verður eftirlitið að stórum hluta sýndareftirlit,“ skrifar Sigrún. Keppinautarnir verði fyrir óréttlæti Bendir Sigrún á óréttlæti sem löghlýðnir veitingamenn verði fyrir þegar keppinautar þess komast mögulega hjá kostnaði með því afla ekki tilskilanna leyfa, uppfylla kröfur og standa skil á opinberum gjöldum. „Þeir sem gera þetta rétt eiga ekki að þurfa að sitja undir því að eftirlit með ólögmætum eða vafasömum rekstri sé sett fram sem óþægindi fyrir þá sem sæta eftirlitinu. Þvert á móti ættu samtök atvinnugreinarinnar að vera fyrstir til að krefjast þess að allir sitji við sama borð,“ skrifar Sigrún. Það sé forsenda fyrir heiðarlegum markaði að staðir sæti eftirliti. „Háannatími getur ekki verið griðland fyrir eftirlit. Ef staður er opinn, tekur við gestum og stundar leyfisskylda starfsemi, þá verður hann að þola að eftirlit fari fram á þeim tíma sem starfsemin er í raun í gangi.“
Veitingastaðir Heilbrigðiseftirlit Stjórnsýsla Næturlíf Reykjavík Tengdar fréttir Lokað vegna skorts á starfsleyfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði þremur skemmtistöðum í nótt. Aðgerðirnar beindust að því að kanna rekstrarleyfi staðanna, auk starfsleyfa öryggisfyrirtækis. 13. júní 2026 14:40 Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira
Lokað vegna skorts á starfsleyfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði þremur skemmtistöðum í nótt. Aðgerðirnar beindust að því að kanna rekstrarleyfi staðanna, auk starfsleyfa öryggisfyrirtækis. 13. júní 2026 14:40