Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Árni Sæberg skrifar 15. júní 2026 12:04 Samskip þurfa að taka til varna í málinu. Vísir/Anton Brink Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efnismeðferðar. Héraðsdómur hafði vísað málinu frá meðal annars á þeim grundvelli að stefna í því fæli í sér óhæfilegan skriflegan málflutning. Stefnan taldi einar 135 blaðsíður.
Í fréttatilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu um úrskurð Landsréttar segir að rétturinn hafi tekið fram að málatilbúnaður Samkeppniseftirlitsins fullnægi áskilnaði laga um meðferð einkamála og að á honum séu engir annmarkar sem leitt geti til þess að vísa eigi málinu frá dómi. Í samræmi við það beri Samskipum að greiða Samkeppniseftirlitinu kostnað við að kæra úrskurð héraðsdóms til Landsréttar. Samkeppniseftirlitið hafi höfðað málið í þeim tilgangi að fá stjórnvaldssekt Samskipa, sem áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafði lækkað úr 4.200 í 2.400 milljónir króna, færða í fyrra horf. Samkeppniseftirlitið hafi talið þá sekt sem áfrýjunarnefndin hafði kveðið á um ekki vera í samræmi við alvarleg og langvarandi brot Samskipa. Helgist af ríkum hagsmunum almennings Í úrskurði héraðsdóms, sem Samkeppniseftirlitið kærði til Landsréttar, hafi verið vísað til reglna dómstólasýslunnar um hámarkslengd stefnu og greinargerða í einkamálum o.fl. og fundið að því að stefna eftirlitsins væri 135 blaðsíður. Héraðsdómur hafi talið lengd stefnunnar gera Samskipum nær ómögulegt að skila greinargerð sem uppfyllti skilyrði laga um meðferð einkamála. Í niðurstöðu Landsréttar sé vísað til þess að Samkeppniseftirlitið hafi samkvæmt samkeppnislögum sérstaka heimild til að höfða dómsmál til ógildingar á úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Landsréttur kveði málsóknarheimild Samkeppniseftirlitsins helgast af „ríkum almannahagsmunum sem og því að dómstólar eigi lokaorðið eftir að ákvörðun um viðurlög liggur fyrir“. Vandasamt að draga málið saman Í niðurstöðu Landsréttar sé rökstutt að engir gallar séu á málatilbúnaði Samkeppniseftirlitsins sem réttlætt geti að málinu sé vísað frá héraðsdómi. Landsréttur taki fram að Samkeppniseftirlitið hafi í stefnu aðgreint með skýrum hætti málsástæður sínar yfir það langa tímabil sem atvik málsins varða. Að því er snertir möguleika Samskipa á að skila greinargerð í málinu segi Landsréttar að þegar litið sé til efnis stefnunnar sem og þess sem er rakið um umfang þeirrar ákvörðunar sem krafist er ógildingar á, málsástæðna aðila og gagna málsins að öðru leyti, verði að telja að samhengi málsatvika og málsástæðna, sem og tilvísun til réttarreglna, séu nægilega ljós til að Samskip geti tekið til efnisvarna. Haft er eftir Gizuri Bergsteinssyni, lögmanni Samkeppniseftirlitsins í málinu, að niðurstaða Landsréttar sé í samræmi við hvort tveggja þær kröfur sem Hæstiréttur hafi gert til stefna í samkeppnismálum og hvernig hliðstæðum réttarfarsreglum sé fylgt eftir í nágrannalöndum. „Það er vandasamt að draga saman kjarnann í umfangsmiklu ólögmætu samráði sem er lýst á yfir þrjúþúsund blaðsíðum í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Úrskurður héraðsdóms kom okkur þess vegna á óvart enda ræðst lengd stefna fyrst og fremst af sakarefninu og þeim kröfum sem réttarfarslög gera um að það sé reifað með gagnorðum og skýrum hætti. Í tengslum við meðferð málsins fyrir Landsrétti öfluðum við upplýsinga um framkvæmd samkeppnismála hjá nágrannaþjóðum okkar. Í ljós kom að málflutningsskjöl í samkeppnismálum hjá frændþjóðum okkar, Dönum og Norðmönnum, eru iðulega mikil að umfangi. Til dæmis lagði danska samkeppniseftirlitið ekki fyrir svo löngu fram 146 blaðsíðna greinargerð í samkeppnismáli fyrir Eystri-Landsrétti. Við teljum þess vegna að niðurstaða Landsréttar sé í samræmi við hvort tveggja þær kröfur sem Hæstiréttur hefur gert til stefna í samkeppnismálum og hvernig hliðstæðum réttarfarsreglum er fylgt eftir hjá frændþjóðum okkar.“
Ólöglegt samráð Eimskips og Samskipa Samkeppnismál Eimskip Dómsmál Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira