Golf

Allt sem þú þarft að vita: Rás­hópur og rás­tími Gunn­laugs á U.S. Open

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinsson verður fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt á U.S. Open risamótinu í karlaflokki
Gunnlaugur Árni Sveinsson verður fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt á U.S. Open risamótinu í karlaflokki LSU

Gunnlaugur Árni Sveinsson verður á fimmtudaginn kemur fyrsti Íslendingurinn til þess að spila á U.S. Open risamótinu í golfi í karlaflokki. Um fyrsta risamót Gunnlaugs er jafnframt að ræða og er ráshópur hans fyrir fyrstu tvo keppnisdaga mótsins klár.

Gunnlaugur hefur leik á Shinnecock Hills vellinum í Southampton í New York fylki á fimmtudaginn fimmtudaginn klukkan 18.20 á íslenskum tíma.

Rástímar fyrir fyrstu tvo keppnisdaga mótsins hafa verið birtir og mun Gunnlaugur spila með Taihei Sato frá Japan og Marcelo Rozo frá Kólumbíu. Báðir tryggðu þeir sér, líkt og Gunnlaugur, sæti á mótinu í gegnum lokaúrtökumót.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Sato tekur þátt á U.S. Open en hann hefur verið fastamaður á Japan Golf Tour mótaröðinni að því er segir í frétt á vefsíðu Golfsambands Íslands. Þetta verður einnig í fyrsta sinn sem Marcelo Rozo tekur þátt á U.S. Open. Hann hefur verði atvinnumaður í golfi síðan árið 2012 og hefur leiki á PGA mótaröðinni, Korn Ferry Tour og PGA Tour Latinoamérica.

Á fimmtudaginn hefja þremenningarnir eins og áður sagði leik klukkan 18.20 á íslenskum tíma á fyrsta teig Shinnecock Hills vallarins. Á föstudaginn hefja þeir sinn hring á tíunda teig klukkan 12.25 á íslenskum tíma.

156 kylfingar taka þátt á U.S. Open þetta árið, þeirra á meðal eru bestu kylfingar heims á borð við Scottie Scheffler, Rory McIlroy og Bryson DeChambeau.

Efstu 60 kylfingarnir, að meðtöldum jöfnum skorum, eftir fyrstu tvo hringi mótsins komast í gegnum niðurskurð og leika á laugardegi og sunnudegi á U.S. Open.

Sýnt verður beint frá U.S. Open risamótinu á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×