Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Kjartan Kjartansson skrifar 18. júní 2026 14:05 Rekstrarniðurstaðan sem var lögð fram í borgarráði í dag er fyrir síðasta heila ársfjórðunginn undir stjórn fyrri meirihluta. Vísir/Vilhelm Rekstur A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæður um tæpa 4,6 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi. Þótt það sé framför frá því í fyrra var niðurstaðan tæplega 1,6 milljarði krónum verri en áætlað var.
Helsta frávikið í rekstrarniðurstöðunni er sagt nettó fjármagnsgjöld sem voru rúmum 1,5 milljörðum króna yfir áætlun. Það er rakið til hærri verðbólgu á fyrstu þremur mánuðum ársins en reiknað var með í áætlun, að því er segir í tilkynningu borgarinnar um óendurskoðað rekstraruppgjörið. Fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var niðurstaðan jákvæð um tæpa 2,2 milljarða króna sem var tæpu, 2,8 milljörðum króna betri niðurstaða en á sama árshluta í fyrra. EBIDTA var engu að síður 82 milljónum krónum lægri en lagt var upp með í áætlunum. Rekstrartekjur jukust um rúma þrjá milljarða króna á milli ára. Skatttekjur ásamt tekjum frá Jöfnunarsjóði jukust um rúman 3,1 milljarða króna. Þar af jókst staðgreiðsla útsvars um rúma 2,8 milljarða. Þá voru framlög frá Jöfnunarsjóði 810 milljónum króna hærri en á fyrsta ársfjórðungi 2025. Sala byggingarréttar var 114 milljónum króna lægri í ár en á sama tímabili árið 2025 en söluhagnaður eigna var rúmum hálfum milljarði hærri. Launakostnaður borgarinnar hækkaði um hátt í 1,2 milljarða króna sem er einkum rakið til launahækkana samkvæmt kjarasamningum. Gjaldfærsla lífeyrisskuldbinding var tæpum 2,2 milljörðum krónum lægri en á sama tímabili 2025 en gjaldfærsla tímabilsins tekur mið af áætlun. Á sama tíma í fyrra var gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga aukin um 2,5 milljarða vegna nýrra kjarasamninga á tímabilinu. Annar rekstrarkostnaður jókst um tæpa 1,3 milljarða króna á milli ára og afskriftir um 161 milljónir. Nettó fjármagnsgjöld voru hátt í 1,8 milljörðum krónum hærri í ár en í fyrra sem er einkum sagt mega rekja til hærri verðbólgu á tímabilinu. Veltufé frá rekstri var jákvætt um 622 milljónir króna og veltufé frá rekstri í hlutfalli af tekjum var jákvætt um 1,2% á fyrsta ársfjórðungi 2026.
Reykjavík Borgarstjórn Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira