Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Freyja Þórisdóttir skrifar 20. júní 2026 12:03 Dóri mun fjalla mikið um mál frá Akureyri en þó ekki einungis. Viktor Freyr/Fm957 Hallór Kristinn Harðarsonar, betur þekktur sem Dóri K, hefur slegist í hóp útvarpsmanna FM957 og mun hann fara í fyrsta sinn í loftið klukkan 16:00 í dag, laugardaginn 20. júní, beint frá Akureyri. Það þekkja hann eflaust flestir Akureyringar en Dóri er tónlistarmaður, handboltamaður, viðburðarhaldari, athafnamaður og svo mætti lengi telja.
Þættirnir verða allar helgar frá klukkan 16:00 til 18:00 og til Dóra munu mæta góðir gestir, þá kannski fleiri að norðan en áður hafa mætt í spjall til þáttastjórnenda á FM957. Dóri segir hugmyndina hafa fyrst komið inn á sitt borð fyrir um fjórum árum. „Þá voru þetta einhverjar pælingar en svo var bara einhvern veginn of mikið að gera, það er reyndar ennþá of mikið að gera,“ segir hann í samtali við blaðamann Vísis og bætir við að honum „finnist þetta bara meika fullkominn sens núna upp á það að fá einhverja rödd frá Norðurlandi“. Það verði þó ekki alfarið fjallað um Akureyri heldur muni hann fá til sín gesti víða að. „Það er léttara fyrir fólk hérna í kring að koma og hoppa inn í spjall en auðvitað mun ég fjalla um allt sem er í gangi á landinu og í heiminum. Ég held samt að þetta geti hjálpað Norðurlandi eitthvað aðeins.“ Ef eitthvað fari illa þá bara fari það illa Þá segist hann ekki vera farinn að finna fyrir stressi þrátt fyrir að hann verði í beinni útsendingu úr útvarpsstúdíóinu í tvo klukkutíma, sleitulaust nánast. „Ég er svo vitlaus að ég segi bara oftast já og svo bara finn ég út úr því,“ segir hann og ítrekar að um leið og hann sé að fara að læra helling til að byrja með en að „um leið og ég er byrjaður að blaðra þá stoppar það örugglega ekkert og ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa. En ég er líka að læra, ég þarf að læra að vera í útvarpi.“ Fyrst um sinn muni ferlið snúast um að læra en svo þróist þátturinn vonandi í skemmtilega átt. Það verði eitthvað tekið af viðtölum og nóg af spjalli. Fyrst um sinn þá verð ég örugglega aðeins að læra inn á kerfið og hvernig þetta virkar svona almennilega og þá þróast þátturinn í einhverja átt sem verður örugglega skemmtileg,“ segir hann og bætir við að „ég mun alveg taka viðtöl og menn munu hoppa inn í þáttinn í spjall og hver veit hvað verður úr honum.“ Vísir er í eigu Sýnar.
Bylgjan Akureyri FM957 Mest lesið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Fleiri fréttir „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Sjá meira