Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Agnar Már Másson skrifar 21. júní 2026 10:33 Brotin voru margskonar um stóru Bíladagahelgina á Akureyri; puttabrot, rúðubrot og áfengislagabrot svo eitthvað sé nefnt. Vísir/Vilhelm Lögreglan á Akureyri rannsakar nú alvarlega líkamsárás á skemmtistað í nótt en alls eru þrjár líkamsárásir til rannsóknar þar á bæ eftir stóru Bíladagahelgina. Einn var handtekinn í nótt vegna rúðubrota en þá var einnig margt um unglingadrykkju um helgina. Lögreglan segir að skipuleggjendur Bíladaga hafi verið til fyrirmyndar.
Ein líkamsárás sem flokka mætti sem alvarlega varð á Akureyri í nótt. „Þetta var einstaklingur sem var puttabrotinn á Sjallanum,“ segir Heimir Heiðarsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri, í samtali við Vísi og bætir við að enn eigi eftir að hafa uppi á þeim sem í sök átti. Sjallinn er einn vinsælasti skemmtistaðurinn á Akureyri.Já Mikið líf og fjör hefur verið fyrir norðan þar sem hinir árlegu Bíladagar voru haldnir um helgina. Þetta er þriðja líkamsárásin á Akureyri um helgina sem flokka mætti sem alvarlega en í fyrrinótt urðu tvær slíkar en Heimir segir að lögregla sé búin að ræða við alla þá sem áttu í hlut í árásunum í gær. Helgin hafi gengið vel að öðru leyti. Mikið um unglingadrykkju „Þá hefur þetta bara gengið vel og viðburðirnir gengið vel á vegum bílaklúbbsins og Bíladaga,“ segir Heimir og tekur fram að utanumhaldið af hálfu Bílaklúbbs Akureyrar hafi verið til fyrirmyndar enda ekki að gera þetta í fyrsta skipti. „Það hefur hins vegar verið meira að gera hjá okkur, einfaldlega vegna þess að hér er meira af fólki. Við erum að taka meira af umferðarlagabrotum, en það er aukið skemmtanahald, borið á unglingadrykkju og mikið af smá ryskingum og pústrum.“ Lögreglan á Akureyri hafði í nógu að snúast um helgina. Hann segir að meira sé um unglingadrykkju í ár en áður. „Við höfum verið að skutla fólki undir lögaldri, fimmtán og sextán ára, heim vegna ölvunar og þurft að hringja í foreldra. Það hefur borið meira á því þessa helgina,“ segir Heimir og tekur fram að spólandi bílar hafi vissulega mikið aðdráttarafl fyrir yngri kynslóðina. Það sé ekki endilega sami markhópur og fari á Kaleó-tónleikana á Þingvöllum. „Í annarlegu ástandi og brýtur rúður“ Heimir hafi þó búist við fleiri næturgestum í fangaklefann í nótt. Um tíma hafi verið um þrír vistaðir, þar af tveir vegna ástands en þeim síðar sleppt, en sá þriðji bíður enn yfirheyrslu vegna rúðubrota á íbúðahúsnæði. „Þetta er bara aðili sem er í annarlegu ástandi og brýtur rúður,“ segir Heimir. En helgin hafi þó gengið vel. „Þeir halda vel utan um þessa dagskrá,“ segir Heimir um Bílaklúbbinn. „Þetta er heldur ekkert í fyrsta skipti sem við erum að gera þetta.“
Akureyri Lögreglumál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira