Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Lovísa Arnardóttir skrifar 27. júní 2026 07:20 Ekki kemur fram hvernig runna er um að ræða eða hvar maðurinn var handtekinn. Vísir/Vilhelm Einn var handtekinn í nótt í Kópavogi eða Breiðholti eftir að hafa ógnað börnum með hníf og reynt að ræna þau hlaupahjóli. Fram kemur í dagbók lögreglu að þessi einstaklingur hafi verið í mjög annarlegu ástandi.
Þá var einnig í Breiðholti eða Kópavogi tilkynnt um einn sem var að stunda sjálfsfróun í runna fyrir framan ungmenni. Lögregla fór á vettvang til að rannsaka málið samkvæmt dagbók en ekki kemur fram hvort einstaklingurinn hafi fundist eða hvort hann hafi verið handtekinn. Alls gistu átta í fangageymslum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Það kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar kemur einnig fram að tilkynnt hafi verið um innbrot í geymslu í heimahúsi og að tilkynnt hafi verið um þjófnað á hjóli við heimahús. Sá sem reyndi að stela hjólinu hafi verið með vopn á sér og í annarlegu ástandi. Þá óskuðu starfsmenn veitingastaðar eftir aðstoð vegna hóps sem var þar að borða. Allir nema einn yfirgáfu veitingastaðinn sem gat ekki borgað reikninginn. Fram kemur í dagbók að málið sé til rannsóknar hjá lögreglunni. Þá var tilkynnt um hávaða í tveimur partíum og nokkrir ökumenn handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna víða um höfuðborgarsvæðið.
Lögreglumál Kópavogur Reykjavík Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Fleiri fréttir Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Sjá meira