Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Áróra L Davíðsdóttir skrifar 28. júní 2026 19:16 Hitamet var slegið í Þýskalandi í gær en 41,5 gráða mældist í Saxland-Anhalt í austurhluta Þyskalands. Getty Hitamet hafa verið slegin víða í Evrópu síðastliðna daga þar sem hitabylgja geisar um álfuna. Víða er búist við þrumuveðri í kjölfar hitans og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir fleiri en 1300 látna vegna veðursins.
Fleiri en 1300 dauðsföll tengd háum hita í Evrópu hafa verið skráð frá 21. júní að sögn framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), Tedros Adhanom Ghebreyesus. „Vegna loftslagsbreytinga og hnattrænnar hlýnunar upplifum við nú nánast árlega hitabylgjur sem áður voru taldar eitthvað sem gerðist aðeins einu sinni á hverri kynslóð,“ segir hann í færslu á X í dag. Hitamet var slegið í Þýskalandi í gær en 41,5 gráða mældist í Saxland-Anhalt í austurhluta landsins. Einnig var hitamet slegið í Danmörku í gær, þegar 37 gráður mældust í Ødum á Austur-Jótlandi, en fyrr í vikunni voru met einnig slegin í Frakklandi og Bretlandi. Rauðar veðurviðvaranir vegna hás hita hafa verið gefnar út meðal annars í Bretlandi og Hollandi, en þar var einni stærstu raftónlistarhátið heims aflýst á föstudaginn vegna hitans. Fréttaveitan Reuters greinir frá því að vísindamenn haldi því fram að hitabylgjan sé sú versta sem mælst hafi í álfunni. Von gæti verið á þrumuveðri í kjölfar hitans í Frakklandi, Þýskalandi og Tékklandi á næstu dögum en búist er við því að hitabylgjan færist lengra inn á meginland Evrópu á næstu dögum. Mikið óveður var í gærnótt í Danmörku að sögn danska ríkisútvarpsins. Skúrir og þrumuveður tóku við af hita gærdagsins og sést hefur til yfir þúsund eldinga á himni. Svipaða sögu er að segja frá Svíþjóð en sænska veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna úrhellisrigningar og þrumuveðurs að sögn sænska ríkisútvarpsins.
Veður Danmörk Frakkland Svíþjóð Hitabylgja í Evrópu í júní 2026 Tengdar fréttir Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veðurstofan í Bretlandi telur líklegt að í dag verði heitasti dagur júnímánaðar frá upphafi mælinga þar í landi. Spáð er því að hitinn fari yfir 35 stig. 23. júní 2026 07:55 Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Íslendingur sem búsettur er í Lundúnum segist aldrei hafa upplifað annan eins hita í borginni. Banvæn hitabylgja ríður yfir Evrópu og eru líkur á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi. 24. júní 2026 20:01 Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira
Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veðurstofan í Bretlandi telur líklegt að í dag verði heitasti dagur júnímánaðar frá upphafi mælinga þar í landi. Spáð er því að hitinn fari yfir 35 stig. 23. júní 2026 07:55
Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Íslendingur sem búsettur er í Lundúnum segist aldrei hafa upplifað annan eins hita í borginni. Banvæn hitabylgja ríður yfir Evrópu og eru líkur á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi. 24. júní 2026 20:01