„Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Agnar Már Másson skrifar 29. júní 2026 12:06 Ming Ting, móðir Catherine Mancel, í Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Catherine Mancel, dóttir Ming Ting Mancel sakbornings í Edition-málinu, er sögð hafa skilið aðgangskort sitt og vinnutölvu eftir á vinnustað sínum í Írlandi áður en hún hélt með foreldrum sínum til Íslands, þar sem hún lést. Þetta þótti óvenjulegt að sögn fyrrverandi kollega hennar, einkum vegna þess að hún ætlaði að nota tölvuna í fjarvinnu á Íslandi. Í aðdraganda ferðarinnar gaf hún samstarfsmönnum sínum tuskudýr að gjöf og veltu einhverjr því fyrir sér hvort það hefði verið kveðjugjöf, að sögn annarrar fyrrverandi samstarfskonu. Fyrrverandi samstarfsmenn Catherine báru vitni fyrir dómi í morgun. Þeir unnu með henni hjá fyrirtækinu MarketStar á Írlandi í sérstöku AirBnB-teymi. Fyrr í dag kom fram í máli fyrrverandi samstarfsmanns hennar að ferðin til Íslands hefði alfarið verið skipulögð af foreldrum hennar og að Catherine hefði ekki fengið að vita nema með skömmum fyrirvara, samkvæmt umfjöllun mbl.is. Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is. Fimmti dagur í Edition-málinu Réttarhöld í Edition-málinu eru komin á fimmta dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þar er hin 56 ára Ming Ting Mancel ákærð fyrir að myrða 29 ára dóttur sína, Catherine, í samráði við eiginmann sinn, Emeric Mancel heitinn, á lúxushótelinu Reykjavik Edition í júní 2025. Samkvæmt ákærunni eiga hjónin að hafa haldið dóttur sinni, Catherine, fastri og brugðið snöru um háls hennar til að þrengja að öndunarvegi. Sjá einnig: Edition-málið Aftur á móti hefur komið fram í málflutningi Ming Ting að fjölskyldan öll hafi ætlað að svipta sig lífi á hótelherberginu þessa nótt, aðfaranótt 14. júní. Ming Ting sagði að dóttir sín hefði ekki streist á móti en hefur sagt engu að síður að dóttir hennar hafi viljað fara á annan hátt. Ein af stóru spurningunum í málinu er því hvort Catherine hafi í raun haft í hyggju að svipta sig lífi. Skildi tölvuna og kortið eftir „Hún [Catherine] var alltaf mjög broslynd og glöð. Hún var mjög þögul,“ sagði írsk fyrrverandi samstarfskona Catherine sem bar vitni í gegnum fjarfundarbúnað í dag. Sú kvaðst muna eftir ferðinni sem Catherine fór með foreldrum sínum til Íslands. Catherine hefði ætlað í vikufrí með fjölskyldunni og sagst ætla að vinna tvo daga þar á vinnufartölvu sinni á írskum skrifstofutíma. En ekkert varð af þessum fjarvinnudögum að sögn samstarfskonunnar enda hafi Catherine aldrei tekið tölvuna með sér. Samstarfskonan sagðist hafa fundið tækið á skrifborði Catherine, ásamt aðgangskorti hennar, einum eða tveimur dögum eftir að hún átti að vera komin aftur. „Hún skildi eftir aðgangskort sitt að skrifstofunni,“ sagði fyrrverandi samstarfskonan. Það þótti óvenjulegt að hennar sögn. Samstarfskonan hafi aftur á móti ekki tekið eftir breytingum í hegðun Catherine í aðdraganda ferðarinnar og mundi ekki eftir því að hafa átt í samskiptum við Catherine dagana áður en hún hélt til Íslands. Hún sagði þó að nokkrir kollegar Catherine hefðu fengið frá henni heklaða bangsa að gjöf nokkrum dögum áður en hún fór. Önnur samstarfskona: Mögulega kveðjugjöf Frönsk fyrrverandi samstarfskona Catherine bar einnig vitni fyrir dómi þar sem hún sagði að Catherine hefði ekki gefið tuskudýrin í eigin persónu, heldur skilið þau eftir á skrifstofunni. „Við ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf,“ sagði Frakkinn og vísaði þar í samtöl milli sín og kollega sinna um tuskudýrin, sem hafi þó átt sér stað einhverju eftir að þeim varð ljóst að Catherine væri ekki að koma aftur til vinnu. Catherine hefði nokkrum mánuðum fyrr gefið einum kollega þeirra svipaða gjöf þegar hann hefði hætt störfum. Hafði áhuga á skrifum og vildi gegna stjórnunarstöðu Samstarfskonan kvaðst ekki vita hvort Catherine hefði átt maka eða marga vini. „Hún var mjög blíð í framkomu, brosmild, vinnusöm og kom alltaf fallega fram,“ sagði franska samstarfskonan. „Henni fannst mjög gaman að skrifa sögur,“ svaraði hún spurð út í áhugamál Catherine. Hún hefði jafnvel sent yfirmanni sínum eina sagna sinna. Aðspurð sagði fyrrum samstarfskonan að Catherine hefði aldrei talað um fjölskyldulífið við sig. Spurð út í framtíðaráform hennar sagði samstarfskonan að Catherine hefði viljað komast í stjórnunarstöðu og jafnvel fengið viðbótarverkefni frá yfirmanni sínum sem hafi líklega haft það markmið að styrkja hana í stjórnunarstörfum. Manndráp á Reykjavík Edition Reykjavík Dómsmál Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is.
Manndráp á Reykjavík Edition Reykjavík Dómsmál Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira