Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Birgir Olgeirsson skrifar 29. júní 2026 14:46 Frásögnum af kvöldinu á Hard Rock bar ekki saman: konan sagði starfsfólk hafa komið illa fram við hópinn en staðurinn sagði konurnar hafa verið háværar og ókurteisar. Kærunefnd jafnréttismála taldi ekki sýnt fram á að brottvísunin hefði tengst þjóðernisuppruna eða tungumálaerfiðleikum. Vilhelm Kærunefnd jafnréttismála hefur hafnað máli konu sem taldi sér hafa verið mismunað á Hard Rock á Lækjargötu eftir að hún óskaði eftir þjónustu á íslensku.
HRC Ísland ehf., rekstraraðili staðarins, er nefnt í úrskurðinum og þar er einnig vísað til einkunnarorðanna „Love all, serve all“ sem hafa fylgt Hard Rock-keðjunni frá stofnun hennar árið 1971. Atvikið átti sér stað árið 2024 þegar konan fór á veitingastaðinn ásamt tveimur vinkonum sínum. Konan sagðist hafa búið hér á landi í um tuttugu ár en hvorki hún né vinkonur hennar tali eða skilji ensku vel. Þegar þær komust að því að þjónninn talaði ekki íslensku óskuðu þær eftir íslenskumælandi starfsmanni. Konan lýsti því fyrir nefndinni að hópurinn hefði fljótlega upplifað sig óvelkominn. Hún sagði starfsfólk hafa sýnt þeim dónaskap, matinn ekki hafa skilað sér og drykk hafa verið hellt yfir hana. Að lokum hafi þeim verið sagt að yfirgefa staðinn og lögregla kölluð til. Veitingastaðurinn lýsti atvikum með allt öðrum hætti. Þar kom fram að konan og vinkonur hennar hefðu verið ölvaðar, háværar og ókurteisar við starfsfólk. Þjónninn hefði ekki talað íslensku en getað tekið við pöntun á íslensku. Vaktstjóri hefði blandað sér í málið og reynt að róa hópinn. Samkvæmt frásögn veitingastaðarins hafi deilan stigmagnast eftir að annar gestur rakst í glas á borði hópsins. Starfsfólk hafi þrifið upp, boðið nýjan drykk og reynt að leysa málið, en viðbrögð hópsins hafi orðið til þess að ákveðið var að vísa konunum út. Lögregla var kölluð til og konan var síðar handtekin fyrir utan staðinn. Kærunefnd jafnréttismála taldi ekki sýnt fram á að konunni hefði verið mismunað vegna þjóðernisuppruna eða tungumálaerfiðleika. Í niðurstöðu nefndarinnar segir að frásögn hennar, um að henni hafi verið vísað út vegna þess að hún bað um íslenskumælandi þjón, hafi þótt nokkuð ótrúverðug. Nefndin taldi líklegra að framkoma hópsins og samskipti hans við starfsfólk hefðu ráðið úrslitum. Hard Rock braut því ekki gegn lögum um jafna meðferð utan vinnumarkaðar.
Næturlíf Lögreglumál Úrskurðar- og kærunefndir Íslensk tunga Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira