Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Freyja Þórisdóttir skrifar 1. júlí 2026 06:32 Rannsókn stendur inn yfir vegna málsins sem kom upp síðasta sunnudag. Rannsókn stendur yfir hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eftir að öldruð kona féll fram af svölum á hjúkrunarheimili í Reykjavík og lést. Forstjóri segir um hörmulegt slys að ræða og að hann viti ekki til þess að annað eins hafi gerst á hjúkrunarheimilinu. Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöð fjögur sem sinnir meðal annars verkefnum í Grafarvogi, segir útkallið hafa borist sunnudaginn 28. júní. Um andlát hafi verið að ræða sem sé rannsakað sem slys. Málið hafi verið flutt á borð miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu. E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á deildinni, segir allt benda til þess að um slys hafi verið að ræða og við það fari alltaf ákveðinn ferill af stað. Eir hjúkrunarheimili stendur við Hlíðarhús í Grafarvogi. Forstjóri þess er Eybjörg Hauksdóttir. Hún segir lögreglu og viðbragðsaðila strax hafa verið kallaða til. Lögregla var kölluð að hjúkrunarheimilinu síðastliðinn sunnudag.Vísir/Vilhelm „Svona hörmulegt atvik fer auðvitað í ákveðið greiningarferli hér innanhúss út frá öryggismálum.“ Það hafi verið starfsfólk Eirar sem kallaði lögreglu til en auk þess hafi Embætti landæknis verið gert viðvart um andlátið. Áfallateymi á vegum Rauða krossins hafi verið fengið til að ræða við starfsfólkið sem var á vakt. Eybjörg leggur áherslu á að hjúkrunarheimili séu heimili fólks og deildin sem hin látna var á sé ekki skilgreind sem lokuð deild. Verið sé að fara yfir verkferla og meta hvort hægt hefði verið að grípa til frekari öryggisráðstafana. Eybjörg segist hvorki sjálf né annað starfsfólk Eirar muna eftir sambærilegu slysi á hjúkrunarheimilinu. „Allir hér hjá Eir eru harmi slegnir. Hugur okkar er hjá aðstandendum hinnar látnu.“ Hefur þú upplýsingar sem gætu skipt máli hvað varðar þetta mál eða önnur? Vísir tekur við fréttaskotum hér. Hjúkrunarheimili Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira
Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöð fjögur sem sinnir meðal annars verkefnum í Grafarvogi, segir útkallið hafa borist sunnudaginn 28. júní. Um andlát hafi verið að ræða sem sé rannsakað sem slys. Málið hafi verið flutt á borð miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu. E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á deildinni, segir allt benda til þess að um slys hafi verið að ræða og við það fari alltaf ákveðinn ferill af stað. Eir hjúkrunarheimili stendur við Hlíðarhús í Grafarvogi. Forstjóri þess er Eybjörg Hauksdóttir. Hún segir lögreglu og viðbragðsaðila strax hafa verið kallaða til. Lögregla var kölluð að hjúkrunarheimilinu síðastliðinn sunnudag.Vísir/Vilhelm „Svona hörmulegt atvik fer auðvitað í ákveðið greiningarferli hér innanhúss út frá öryggismálum.“ Það hafi verið starfsfólk Eirar sem kallaði lögreglu til en auk þess hafi Embætti landæknis verið gert viðvart um andlátið. Áfallateymi á vegum Rauða krossins hafi verið fengið til að ræða við starfsfólkið sem var á vakt. Eybjörg leggur áherslu á að hjúkrunarheimili séu heimili fólks og deildin sem hin látna var á sé ekki skilgreind sem lokuð deild. Verið sé að fara yfir verkferla og meta hvort hægt hefði verið að grípa til frekari öryggisráðstafana. Eybjörg segist hvorki sjálf né annað starfsfólk Eirar muna eftir sambærilegu slysi á hjúkrunarheimilinu. „Allir hér hjá Eir eru harmi slegnir. Hugur okkar er hjá aðstandendum hinnar látnu.“ Hefur þú upplýsingar sem gætu skipt máli hvað varðar þetta mál eða önnur? Vísir tekur við fréttaskotum hér.
Hefur þú upplýsingar sem gætu skipt máli hvað varðar þetta mál eða önnur? Vísir tekur við fréttaskotum hér.
Hjúkrunarheimili Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira