Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Freyja Þórisdóttir skrifar 6. júlí 2026 13:58 Sams konar stefnuyfirlýsing var skilin eftir í byrjun júní á Reykjabúi í Mosfellsbæ og var skilin eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss í upphafi maímánaðar. Vísir/Vilhelm/Getty Tvö áþekk innbrot voru framin í byrjun sumars, fyrst í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudagsins 11. maí en síðar í Reykjabú í Mosfellsbæ, þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar, aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Rannsókn beggja mála er ólokið og hefur enginn verið handtekinn en lögreglan hefur leitað að vitnum síðan í upphafi júní. Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn á lögreglustöð fjögur, staðfesti í samtali við blaðamann Vísis að málin tvö séu enn í rannsókn. Enn hafi enginn verið handtekinn í tengslum við innbrotin. Lögreglan hóf leit að vitnum í tengslum við rannsókn hennar á seinna innbrotinu en í tilkynningu kom fram að lögregla telji innbrotsþjófinn hafa verið svartklæddan og komið fótgangandi að Reykjabúinu. Hún telur ekki ósennilegt að hann hafi verið akandi og langt ökutæki sínu fjarri vettvangi og gengið þaðan, mögulega neðan úr Skammadal, frá Helgafellshverfinu, úr Reykjahverfinu eða frá Hafravatnsvegi. Telja að sömu aðilar hafi verið að verki „Það er ekkert að frétta. Ekkert nýtt,“ segir hún en bætir við að miðað við stöðuna í dag telji lögreglan sömu aðila hafa verið að verki í báðum innbrotum. „Við teljum náttúrulega líklegt að svo sé en höfum ekkert í höndunum.“ Í báðum tilvikum var skilið eftir svokallað „manifestó“ eða stefnuyfirlýsing á vettvangi og í innbrotinu í Reykjabú bar maðurinn sem braust inn blak af sér vegna innbrotsins í svínabúið og afsakaði það, er haft eftir bónda á Reykjabúi. Bóndinn, Jón Magnús Jónsson, sagði þá einnig að um einn mann hafi verið að ræða en hann sagði jafnframt ljóst að ekki nægði að hafa læstar hurðir og tryggja þannig öryggi dýranna. Talið er að skemmdirnar hafi verið unnar í yfirskyni dýravelferðar. Innbrotin tvö eru keimlík en greint var frá því þann 12. maí í tilkynningu að umfang og framkvæmd innbrotsins og skemmdanna í svínabúi Stjörnugríss þættu benda til þess að fleiri en einn hafi verið að verki. Þá var, líkt og fyrr segir samkvæmt bóndanum í Reykjabúi, aðeins einn að verki í seinna innbrotinu. Hefur þú lent í langri bið í vegabréfseftirliti á Keflavíkurflugvelli? Vísir tekur við fréttaskotum og myndum hér. Lögreglumál Matvælaframleiðsla Mosfellsbær Dýr Reykjavík Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Tengdar fréttir Dýrum stefnt í hættu Starfsmaður alifuglabús segir dýrum hafa verið stefnt í hættu þegar brotist var inn í búið í vikunni. Aflífa þurfti dýr sem hleypt var út. 2. júní 2026 19:31 Innbrot og skemmdarverk hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudags og voru unnar miklar skemmdir. Þá var dýrum hleypt út og drápust tíu smágrísir auk þess sem taka þurfti einn grís af lífi vegna kjálkabrots. Talið er að skemmdirnar hafi verið unnar í yfirskyni dýravelferðar. 12. maí 2026 09:42 Skemmdarvargarnir skildu eftir „manifestó“ Skemmdarvargar sem brutust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi skildu eftir „manifestó“, svokallaða stefnuyfirlýsingu á staðnum. Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir aðkomuna hafa verið ljóta og nýr veruleiki blasi við fyrirtækjum í matvælaframleiðslu hér á landi. 12. maí 2026 12:00 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira
Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn á lögreglustöð fjögur, staðfesti í samtali við blaðamann Vísis að málin tvö séu enn í rannsókn. Enn hafi enginn verið handtekinn í tengslum við innbrotin. Lögreglan hóf leit að vitnum í tengslum við rannsókn hennar á seinna innbrotinu en í tilkynningu kom fram að lögregla telji innbrotsþjófinn hafa verið svartklæddan og komið fótgangandi að Reykjabúinu. Hún telur ekki ósennilegt að hann hafi verið akandi og langt ökutæki sínu fjarri vettvangi og gengið þaðan, mögulega neðan úr Skammadal, frá Helgafellshverfinu, úr Reykjahverfinu eða frá Hafravatnsvegi. Telja að sömu aðilar hafi verið að verki „Það er ekkert að frétta. Ekkert nýtt,“ segir hún en bætir við að miðað við stöðuna í dag telji lögreglan sömu aðila hafa verið að verki í báðum innbrotum. „Við teljum náttúrulega líklegt að svo sé en höfum ekkert í höndunum.“ Í báðum tilvikum var skilið eftir svokallað „manifestó“ eða stefnuyfirlýsing á vettvangi og í innbrotinu í Reykjabú bar maðurinn sem braust inn blak af sér vegna innbrotsins í svínabúið og afsakaði það, er haft eftir bónda á Reykjabúi. Bóndinn, Jón Magnús Jónsson, sagði þá einnig að um einn mann hafi verið að ræða en hann sagði jafnframt ljóst að ekki nægði að hafa læstar hurðir og tryggja þannig öryggi dýranna. Talið er að skemmdirnar hafi verið unnar í yfirskyni dýravelferðar. Innbrotin tvö eru keimlík en greint var frá því þann 12. maí í tilkynningu að umfang og framkvæmd innbrotsins og skemmdanna í svínabúi Stjörnugríss þættu benda til þess að fleiri en einn hafi verið að verki. Þá var, líkt og fyrr segir samkvæmt bóndanum í Reykjabúi, aðeins einn að verki í seinna innbrotinu. Hefur þú lent í langri bið í vegabréfseftirliti á Keflavíkurflugvelli? Vísir tekur við fréttaskotum og myndum hér.
Hefur þú lent í langri bið í vegabréfseftirliti á Keflavíkurflugvelli? Vísir tekur við fréttaskotum og myndum hér.
Lögreglumál Matvælaframleiðsla Mosfellsbær Dýr Reykjavík Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Tengdar fréttir Dýrum stefnt í hættu Starfsmaður alifuglabús segir dýrum hafa verið stefnt í hættu þegar brotist var inn í búið í vikunni. Aflífa þurfti dýr sem hleypt var út. 2. júní 2026 19:31 Innbrot og skemmdarverk hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudags og voru unnar miklar skemmdir. Þá var dýrum hleypt út og drápust tíu smágrísir auk þess sem taka þurfti einn grís af lífi vegna kjálkabrots. Talið er að skemmdirnar hafi verið unnar í yfirskyni dýravelferðar. 12. maí 2026 09:42 Skemmdarvargarnir skildu eftir „manifestó“ Skemmdarvargar sem brutust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi skildu eftir „manifestó“, svokallaða stefnuyfirlýsingu á staðnum. Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir aðkomuna hafa verið ljóta og nýr veruleiki blasi við fyrirtækjum í matvælaframleiðslu hér á landi. 12. maí 2026 12:00 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira
Dýrum stefnt í hættu Starfsmaður alifuglabús segir dýrum hafa verið stefnt í hættu þegar brotist var inn í búið í vikunni. Aflífa þurfti dýr sem hleypt var út. 2. júní 2026 19:31
Innbrot og skemmdarverk hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudags og voru unnar miklar skemmdir. Þá var dýrum hleypt út og drápust tíu smágrísir auk þess sem taka þurfti einn grís af lífi vegna kjálkabrots. Talið er að skemmdirnar hafi verið unnar í yfirskyni dýravelferðar. 12. maí 2026 09:42
Skemmdarvargarnir skildu eftir „manifestó“ Skemmdarvargar sem brutust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi skildu eftir „manifestó“, svokallaða stefnuyfirlýsingu á staðnum. Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir aðkomuna hafa verið ljóta og nýr veruleiki blasi við fyrirtækjum í matvælaframleiðslu hér á landi. 12. maí 2026 12:00