Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Jón Þór Stefánsson skrifar 7. júlí 2026 11:46 Atvikin áttu sér stað um nýársnótt. Vísir/Egill Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Wenwei Zhang í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun sem hann framdi á nýársdag árið 2024.
Atvikið sem málið varðar átti sér í svefnherbergi í AirBnb-leiguíbúð. Þau voru ferðamenn á Íslandi sem höfðu kynnst skömmu fyrir ferðina, en Zhang tók að sér að aka henni og vinum hennar um landið. Nauðgunin var framin í lok ferðarinnar, þegar þau voru tvö eftir á landinu, en vinirnir voru farnir upp á flugvöll. Honum var gefið að sök að hafa samræði og önnur kynferðismök við konu með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung. Hann hafi endurtekið beðið konuna um samræði, ýtt henni á rúmið, afklætt hana og haldið henni niðri, sleikt kynfæri hennar og haft við hana samræði. Hann hafi skeytt því engu þótt konan hafi ítrekaði með orðum og athöfnum að hún vildi það ekki og bæði hann um að láta af háttseminni, og klóraði og klipi hann. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu.Vísir/Vilhelm Zhang neitaði sök og vildi meina að þau hefðu stundað kynlíf með fullu samþykki konunnar. Hún hafi til að mynda beðið hann um að koma með sér inn í herbergi. Konan hins vegar sagði Zhang hafa elt sig inn í svefnherbergi þegar hún hafi ætlað að sofa. Hann hafi svo lyft henni, kastað í rúmið og afklætt hana. Meðan hafi hún barist á móti þangað til hún varð þreklaus. Meðan hann hafi nauðgað henni hafi hún svo slegið, sparkað og klórað hann hvar sem hún náði til. Að lokum hefði Zhang látið af háttsemi sinni, komið með einhvern drykk til hennar og síðan farið í sitt herbergi. Að sögn konunnar tók hún í kjölfarið með sér hnífa í svefnherbergið þar sem hún óttaðist að ákærði myndi aftur veitast að sér. Konan hafi haldið hnífi að hálsi hans Maðurinn sagðist hafa vaknað við það að konan héldi hnífi að hálsi hans, og hún verið búin að veita honum áverka með þeim og nöglum sínum. Hann kvað konuna hafa sagt að hún vildi að hann missti blóð þar sem hann hefði ekki gefið henni þær gjafir sem hann hefði lofað henni. Konan hins vegar sagði að maðurinn hafi veitt sér þá áverka sjálfur. Eigendur AirBnb-íbúðarinnar lýstu vettvanginum og að mati dómsins passaði sú lýsing frekar við frásögn konunnar um hnífana. Dómurinn mat framburð konunnar trúverðugari en Zhang. Líkt og áður segir var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi, og gert að greiða henni tvær milljónir króna í miskabætur.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Reykjavík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira