Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. júlí 2026 06:33 Í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sagði að koma hefði mátt í veg fyrir mannslát ef brunavarnir hefðu verið virkar. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á brunanum á Stuðlum þann 19. október 2024 og málið verið afhent ákærusviði til meðferðar. Tíu hafa réttarstöðu sakbornings í málinu.
Frá þessu greinir Morgunblaðið og hefur eftir Elíni Agnesi Kristínardóttir Eide, yfirlögregluþjóni á rannsóknarsviði lögreglunnar. Sautján ára drengur, Geir Örn Jacobsen, lést í brunanum og starfsmaður Stuðla slasaðist. Morgunblaðið hefur eftir heimildarmönnum að tveir starfsmenn séu í hópi þeirra sem hafa réttarstöðu grunaðra en hópur sakborninga nái út fyrir Stuðla og Barna- og fjölskyldustofu, sem rekur meðferðarheimilið. Vísir greindi frá því í mars að rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hefði leitt í ljós alvarlega annmarka á brunavörnum á Stuðlum, sem hefðu haft veruleg áhrif á öryggi og mannslíf. „Á árunum fyrir eldsvoðann voru ítrekað gerðar kröfur um úrbætur á brunavörnum gagnvart Ríkiseignum, sem eiganda mannvirkisins. Kröfur um úrbætur voru bæði gerðar í kjölfar hefðbundins eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og við framkvæmd öryggis- og lokaúttekta byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Þrátt fyrir það voru nauðsynlegar úrbætur ekki gerðar,“ sagði í tilkynningu um skýrslu HMS. Geir Örn var í neyðarvistun á Stuðlum þegar hann lést í eldsvoðanum en í skýrslunni sagði að ef brunavarnir hefðu verið virkar hefði verið hægt að koma í veg fyrir mannslát.
Málefni Stuðla Lögreglumál Reykjavík Meðferðarheimili Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira