Tónlist

Bonnie Tyler er látin

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Bonnie Tyler keppti fyrir hönd Breta í Eurovision árið 2013.
Bonnie Tyler keppti fyrir hönd Breta í Eurovision árið 2013. Vísir/EPA

Velska söngkonan Bonnie Tyler er látin, 75 ára að aldri. Tyler kom fyrst fram á sjónarsviðið á seinni hluta áttunda áratugarins og varð ein stærsta söngkona þess níunda með slögurum á borð við „Total Eclipse of the Heart“ og „Holding Out for a Hero“.

Fjölskylda Tyler greindi frá andláti hennar á heimasíðu tónlistarkonunnar,

„Fjölskylda Bonniear og teymi eru gríðarsorgmædd að þurfa að tilkynna að Bonnie féll sviplega frá síðustu nótt á sjúkrahúsi í Portúgal vegna veikinda sem hún hafði verið að glíma við,“ sagði í tilkynningunni.

Fréttin verður uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.