Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson skrifar 10. júlí 2026 11:31 Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor birti í gær upplýsingar um að heimilin beri árlega allt að 20 milljarða kostnað - vegna gengismunar AUK annarra gjalda af erlendum kreditkortafærslum - og það á hverju ári. Stór hluti þessa kostnaðar félli niður ef við tækjum upp evru í stað krónu. Dýrt að nota kreditkort fyrir Íslendinga Gylfi rekur að þetta eigi sér tvenns konar rætur. Annars vegar að kostnaður við kortanotkun (og greiðslumiðlun) sé hár á Íslandi, talsvert hærri en í nágrannalöndunum. Þetta gæti breyst og lækkað með tilkomu evru vegna stærðarhagkvæmni. Rándýrt að nota kort í útlöndum Hitt væri ennþá stærri breyting. Það er gríðarlega dýrt að skipta milli gjaldmiðla fyrir Íslendinga þegar greiðslukort eru annars vegar. Gylfi segir: „Álagning á því sviði er himinhá, þótt það sé komið eitthvað lífsmark með samkeppni þar vegna nýrra aðila á markaðinum, sérstaklega Indó. Stóru bankarnir eru með þetta 5-6% mun á kaup- og sölugengi evru og dollars þegar kort eru notuð (og meiri mun fyrir sjaldgæfari gjaldmiðla). Þannig gæti þýskur ferðamaður á Íslandi fengið 122,40 krónur fyrir evru í dag en Íslendingur á Tenerife greitt 128,90 krónur fyrir evruna. Þegar horft er til þess hve kortaveltan er mikil þá eru háar upphæðir undir.“ Hvað eru þetta stórar tölur í heild fyrir heimilin? Gylfi rekur að síðustu 12 mánuði hafi erlend greiðslukort verið notuð fyrir 359 ma. á Íslandi og íslensk kort verið straujuð fyrir 402 ma. erlendis. „Miðað við hátt í 6% mun á kaup- og sölugengi skilar þetta fjármálafyrirtækjum líklega ríflega 20 milljörðum króna í gengismun - fyrir utan aðrar þóknanir.“ Heimilin: 20 milljarðar ofan á yfir 100 milljarða árlega! Þessi kostnaður heimilanna við notkun kreditkorta erlendis bætist við þann yfir hundrað milljarða umfram vaxtakostnað af húsnæðislánum sem heimilin bera vegna krónunnar eins og annar hagfræðiprófessor, Gauti B. Eggertsson við Brown-háskóla, hefur staðfest og dregið rækilega fram nýlega. Upptaka evru er kjaramál Heimilin hafa mikinn hag af því að evra komi í stað krónu. Ofangreindar staðreyndir þýða að kostnaðurinn við krónuna fyrir heimili þitt - sem þú greiðir til bankans og kreditkortafyrirtækjanna á hverju ári - getur hæglega gleypt ein til tvenn mánanaðlaun á ári hverju. Stöndum sjálf vörð um almannahagsmuni Í umræðunni um hvort láta eigi reyna á samninga við Evrópusambandið getum við algerlega treyst því að sérhagsmunaaðilar muni standa vörð um sína sérhagsmuni. Þegar bankastjórar segja okkur að ekkert myndi breytast með upptöku evru eru þeir klárlega ekki að segja alla söguna. Almenningur sjálfur, verkalýðsfélög, neytendasamtök og stjórnmálin verða að standa vörð um hagsmuni almennings – almannahagsmuni – í þessari umræðu. Það gerir það enginn annar fyrir okkur. Heimilisbókhaldið er á kjörseðlinum Getum við ekki verið sammála um að hagur heimilanna ætti að vera eitt mikilvægasta atriðið til að taka ákvarðanir út frá? Já, ég er að tala um hagmundi venjulegra heimila. Þau sem skulda húsnæðislán og vilja geta staðið skil á sínu en kannski líka geta farið til útlanda endrum og sinnum. Og já, ég er sannarlega líka að tala um hagsmuni ungs fólks og komandi kynslóða. Börnin okkar. Kostnaður af húsnæðisvöxtum, kreditkortum og hin eilífa barátta við að láta enda ná saman eða hafa meira á milli handanna á efri árum er klárlega eitthvað sem við þurfum að taka inn í myndina og umræðuna um ESB og evru. Í mínum huga er þetta eitt aðalatriðið sem við ættum að hafa í huga þegar við kjósum um hvort láta eigi reyna á samningaviðræður við ESB 29. ágúst. Heimilisbókhaldið er á kjörseðlinum. Höfundur er þingmaður Reykvíkinga Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagur B. Eggertsson Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun