Kveðum niður gyðingahatur Guðmundur J. Guðmundsson skrifar 13. júlí 2026 16:02 Fyrir nokkrum dögum síðan las ég í fjölmiðlum frétt þess efnis að gamla Framsóknarhúsið hefði fengið nýtt hlutverk, þar væri tekin til starfa menningarmiðstöð gyðinga með bænahúsi og allt. Þetta er fagnaðarefni. Gyðingar hafa alla jafnan auðgað þau samfélög þar sem þeir hafa sest að. Einkum hafa þeir haft góð áhrif á menningu, listir og skemmtanaiðnað. Það er full ástæða til að gera ráð fyrir því að það sama eigi við hér. Af þessu tilefni var bent á að gyðingar ættu sér um þessar mundir hundrað ára sögu hér á landi. Því miður verður að segjast að sú saga er ekki alltaf ánægjuleg. Þeir gyðingar sem hingað komu á fjórða áratug síðustu aldar fengu yfirleitt heldur kuldalegar móttökur, sumum var vísað úr landi og flestum þeirra sem sóttu um landvistarleyfi var hafnað. Þótt ég viti það ekki með vissu má gera ráð fyrir að einhverjir þeirra hafi endað ævina í gasklefunum. Það er rétt að halda því til haga að það voru einkum forystu menn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sem báru ábyrgð á þessu framferði. Á undanförnum árum hefur gyðingaandúð farið vaxandi í Evrópu og á það líka við um Ísland. Hér á landi hefur þessi óværa einkum gert vart við sig á samfélagsmiðlum og í kommentakerfum fjölmiðlanna en hún getur tekið á sig ýmar myndir. Fyrir nokkrum vikum skrifaði ísraelskur gyðingur, sem hér er búsettur, grein í blað þar sem hann lýsti reynslu sinni sem fólst í því að ýmsir kunningjar hans fóru að hunsa hann. Ástæðan var að sjálfsögðu framferði Ísraelshers og öfgasíonista í Miðausturlöndum. Þessi maður er hins vegar andstæðingur núverandi stjórnvalda í Ísrael og hefur gagnrýnt framferði þeirra. Það skýtur því skökku við að hann skuli verða fyrir aðkasti vegna framferðis sem hann ber enga ábyrgð á og hefur andæft. Að hunsa manneskju bara vegna þess að hún er ísraelskur gyðingur er kímið að gyðingahatri og það er skylda okkar sem krefjumst mannréttinda handa ÖLLUM að gera allt sem í okkar valdi stendur til að kveða það niður í fæðingu. Það er fyrst og fremst vatn á myllu ódæðismannanna í Tel Aviv að ýfast við gyðingum í Evrópu eða ráðast gegn eignum þeirra en hjálpar í engu þeim íbúum Miðausturlanda sem liggja undir árásum síonísta. Það er skylda okkar að taka vel á móti þeim gyðingum sem hingað sækja eins og öðrum. Sá sem hér heldur á penna myndi til dæmis ekki hrökkva upp af standinum þótt í ljós kæmi að þó nokkrir af þeim hafi yfirgefið Ísrael vegna þróunar ísraelsk samfélags í átt að þeim siðlausa og forherta barbarisma sem við höfum orðið vitni að á síðustu áratugum. Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að kveða niður hið fyrsta andúð á gyðingum. Það er ærið verkefni að fást við þá hómófóbíu og múslimahatur sem vellur um samfélagsmiðlana og kommentakerfin og mun án efa einhvern tíma brjótast út í ofbeldisverkum. Sá óþverri er ekkert að fara. Höfundur er sagnfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar