Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir skrifar 13. júlí 2026 18:03 Á tímum þar sem hraði og álag einkenna daglegt líf leita sífellt fleiri leiða til að finna kyrrð, jafnvægi og innri frið. Pílagrímaganga mætir þeirri þörf. Vinsældir hins fræga Jakobsvegar sem er ein þekktasta pílagrímaleið í Evrópu hefur aldrei verið meiri og hér á landi hefur tilboðum þjóðkirkjunnar um árlegar pílagrímagöngur, göngumessur og kirkjugöngur stóraukist. Pílagrímaganga er ekki keppni um að komast sem fyrst á áfangastað heldur ferð þar sem hvert skref verður að tækifæri til bænar, íhugunar og nærveru. Gangan verður þannig andleg iðkun sem nærir líkama og sál. Dagana 16.–19. júlí næstkomandi verður gengin hin árlega pílagrímaganga frá Reynivallakirkju í Kjós að Þingvallakirkju og þaðan áfram til Skálholtsdómkirkju. Biskup Íslands mun veita fararblessun við upphaf göngu í Reynivallakirkju og slást í för með pílagrímunum. Á lokadegi göngunnar sameinast þátttakendur öðrum pílagrímum sem ganga dagleið frá Ólafsvallakirkju, og ganga allir saman síðustu skrefin inn í Skálholtsdómkirkju. Pílagrímagöngur hafa verið hluti af Skálholtshátíð í yfir tvo áratugi, en sú hátíð er haldin árlega á Þorláksmessu á sumri. Fyrir tilstuðlan dr. Péturs Péturssonar fyrrverandi rektors Skálholtsskóla var fyrsta pílagrímagangan á Skálholtshátíð gengin árið 2004. Í ár er dagskrá Skálholtshátíðar vegleg sem endranær og nær hámarki í hátíðarmessu kl.14 þann 19. júlí, þar sem pílagrímar ganga berfættir inn kirkjugólfið og taka þátt í helgihaldinu. Í pílagrímagöngum eru sjö lyklar pílagrímsins íhugaðir. Lyklarnir eru leiðarljós sem hjálpa fólki við að tileinka sér hugarfar pílagrímsins, ekki aðeins á göngunni heldur einnig í amstri hversdagsins. Lyklarnir sjö eru: frelsi, einfaldleiki, hæglæti, kyrrð, æðruleysi, samkennd og andlegur vöxtur. Þeir minna fólk á að hægja á ferðinni, sleppa taki á því sem fjötrar eða bindur, lifa einfaldara lífi, sýna náunganum umhyggju sem og sköpun allri, rækta kyrrðina, styrkja tengsl og næra trúarlífið. Þannig verður pílagrímsferðin ekki aðeins nokkurra daga ganga heldur nærir hún lífsviðhorf sem fylgir göngufólki heim. Það sem gerir pílagrímagöngu sérstaka er einmitt þetta rými til að hægja á sér. Í kyrrð náttúrunnar, í takt við eigin andardrátt og þar sem í hverju skrefi er fólgin bæn, skapast tækifæri til að leggja frá sér áhyggjur, hlusta á sjálfan sig og opna hugann fyrir Guði. Samveran og samtalið á göngunni er einlægt og uppbyggileg, en jafnframt gefst nægt svigrúm til þagnar og persónulegrar íhugunar. Margir lýsa því að þeir finni fyrir nýjum krafti, friði og von þegar ferðinni lýkur. Sumt fólk finnur huga og hjarta fyllast þakklæti og kærleika. Pílagrímagangan hefur einnig jákvæð áhrif á líkamlega heilsu. Dagleg hreyfing, ferskt loft og samvera án þess að hraði hversdagsins trufli, stuðlar að betri líðan. Líkaminn styrkist, hugurinn róast og sálin fær hvíld. Þannig sameinar gangan trú, náttúru og hreyfingu sem stuðlar þeirri endurnýjun sem pílagrímar finna sterkt fyrir. Pílagrímagangan frá Reynivallakirkju í Kjós til Skálholts er öllum opin. Sumir ganga í trú, aðrir eru leitandi eða einfaldlega þrá nokkra daga í kyrrð í góðum félagsskap. Gangan minnir á að stundum eru það einföldustu skrefin sem varða leiðina að djúpi sálarinnar og jafnframt nær Guði, náunganum og okkur sjálfum. Markmiðið er að þátttakendur snúi heim, endurnærðir með hugarfar pílagrímsins í farteskinu og finni leiðir til að láta sjö lykla pílagrímsins móta daglegt líf sitt, sér til blessunar og öðrum til heilla. Sóknarprestur í Esjuprestakalli sem leiðir pílagrímagöngu í Skálholtsdómkirkju. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar