Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar 13. júlí 2026 22:00 Undanfarið hefur borið á einræðishyggju jafnaðarmanna og krata í Bretlandi og Þýskalandi. Það sem skýrir þessa pólitík jafnaðarmanna og krata Evrópu er vilji til þess að verja kapítalismann og vestræna yfirburðahyggju með öllum ráðum, en með þeim hætti að sýnast vera talsmenn skynsemispólitíkur og segja andstæðinga þessarar hyggju vera öfgamenn og eru þá vestrænir sósíalistar, sem gjarnan mótmæla þessari pólitík, oft málaðir upp sem öfgamenn og oft sagðir vera á pari við fasistana sem styðja Trump. Þetta er gjarnan notað til þess að þagga niðri í fólki vinstra megin við jafnaðarmennskuna og hefur þetta gengið býsna vel. Það hefur verið nokkuð einfalt í gegnum tíðina fyrir jafnaðarmenn og krata Íslands að sannfæra íslenska þjóð um að pólitík þeirra sé pólitík jákvæðni og skynsemi. Meðal ástæðna þessa er skaðleg pólitík íhaldsins. Hins vegar hefur helförin í Gaza og þátttaka evrópskra jafnaðarmanna og krata í henni breytt þessu heilmikið, sérstaklega í huga þeirra einstaklinga sem lagt hafa sig fram um að heimta pólitík sem tekur á þjóðarmorði á vegum Evrópu og Bandaríkjanna en tekur ekki þátt í henni. Þannig voru t.a.m. fyrir um tæpu ári síðan mótmælin Þjóð gegn þjóðarmorði á Austurvelli vegna Gaza og mikil breiðfylking sem þar mætti þó Hjúkrunarfræðingafélagið sæi sér ekki fært að vera með okkur. Ríkisstjórn jafnaðarmanna átti mjög erfitt með þessi mótmæli því að þeir ætluðu sér aldrei að verða við kröfum og óskum stuðningsfólks Gaza á Íslandi og ekkert gerðist. Eftirfylgnin mótmælenda var ekki næg, m.a. vegna þess að við héldum enn í vonina um að jafnaðarmenn og kratar myndu sjá að sér og taka þátt með okkur í baráttunni gegn þjóðarmorði. Nú þegar jafnaðarmenn og kratar Íslands og Evrópu hafa sýnt okkur að þeir ætla sér frekar að banna mótmæli okkar, eins og sést t.d. í tillögum á þingum Þjóðverja og Breta, frekar en að verða við kröfum okkar og óskum er orðið mjög auðvelt að sýna fram á skaðsemi þessarar pólitíkur. Pólitík sem lætur sér fátt um finnast gagnvart daglegum morðum á börnum á auðvitað ekki von til þess að endast lengi. Krafa um að stunda ekki viðskipti við barnamorðingjaþjóðir getur varla talist öfgafull krafa, heldur heilbrigð og skynsamleg. Sú einfalda krafa íslenskra stuðningsmanna Gaza um að íslenska ríkið segi upp samstarfssamningum við ísraelska fyrirtækið Rapyd á Íslandi hefur verið hunsuð. Það sem er óheilbrigt og vont eru þau stóru viðskipti sem Evrópusambandið og evrópsk stjórnvöld eiga við ríkisstjórn og fyrirtæki Ísraela. Al-Jazeera greindi frá umfangi þessara miklu viðskipta á dögunum og er það enn eitt dæmið um að evrópskir fjölmiðlar eru stórvægilegir þátttakendur í helförinni að þeir hafi ekki greint frá þessu, hvorki fyrir né eftir umfjöllun Al-Jazeera. Án umfjöllunar Al-Jazeera hefðum við mögulega aldrei heyrt af stórfenglegu umfangi viðskipta Evrópu og Ísraela í dag. Þessi miklu viðskipti eru að sjálfsögðu valdandi því að styðja við helförina á Gaza og að útiloka möguleikann á því að pólitík jafnaðarmanna og krata geti talist skynsamleg pólitík. Ég segi NEI við zíonisma, pólitíkinni sem varð til þess að stofna nýtt ríki á stolnu landi Palestínumanna, pólitíkinni sem varð til þess að kenna ungum, hvítum Ashkenazi-gyðingum í Ísrael undanfarin 78 ár að útrýming hinna innfæddu íbúa svæðisins væri bæði réttlát og góð. Vegna þátttöku íslenskra og evrópskra jafnaðarmanna og krata í helförinni á Gaza undanfarin 3 ár segi ég NEI við ESB og NEI við allri pólitík jafnaðarmanna og krata. Höfundur er sjúkraliðanemi og frambjóðandi til formanns Vinstri grænna vorið 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar