Viðskipti innlent

Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Svana Huld Linnet, framkvæmdastjóri viðskiptavina hjá Reitum, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, Vífill Ingimarsson, framkvæmdastjóri Nettó, Kjörbúðarinnar og Prís, og Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Svana Huld Linnet, framkvæmdastjóri viðskiptavina hjá Reitum, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, Vífill Ingimarsson, framkvæmdastjóri Nettó, Kjörbúðarinnar og Prís, og Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Aðsend

Drangar, sem eiga meðal annars Nettó, Lyfjaval og Brauð og Co., ætla að opna nýjan verslunarkjarna á Korputúni. Forsvarsmenn Dranga og Reita undirrituðu leigusamning þess efnis í dag.

Verslunarkjarninn mun verða rúmlega 5500 fermetrar í fjórum lágreistum byggingum við Korputún 2 til 8. Framkvæmdir á Korputúni standa yfir og er stefnt að því að verslanirnar opni sumarið 2027.

Svona mun Korputún líta út.Aðsend

Drangur mun annast rekstur verslunarrýmanna. Verslanir Nettó og Kjötkompanís verða við Korputún 6 og bakaríið Brauð og Co. þar við hlið. Í Korputúni 8 verður opnuð verslun Lyfjavals auk þess sem „nútímalegur veitingastaður“ verður starfræktur þar samkvæmt fréttatilkynningu.

Í Korputúni 2 verða síðan tvær þekktar evrópskar verslanir í fyrsta sinn á Íslandi þar sem meðal annars verður boðið upp á snyrtivörur, heimilisvörur og ritföng. Ekki kemur fram hvaða verslanir um ræðir.

„Við teljum staðsetningu verslunar- og þjónustukjarna við Korputún afar heppilega því hún mætir vel þörfum íbúa og ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu. Það er okkur mikilvægt að vera þátttakandi í uppbyggingu Korputúns og við erum sannfærð um að þar verður öflugur áfangastaður fyrir verslun og þjónustu. Markmið okkar er að bjóða viðskiptavinum fjölbreytt úrval þjónustu og verslana sem mætir ólíkum þörfum á einum stað,“ er haft eftir Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga, í tilkynningunni.

Vernda vatnsgæði Korpu

Reitir annast þróun og uppbyggingu Korputúns og þegar uppbyggingu verður lokið mun svæðið ná yfir 90.000 fermetra. Skipulag svæðisins gerir ráð fyrir fjölbreyttri blöndu verslunar, þjónustu, skrifstofa og létts iðnaðar. 

Nettó verður meðal verslana á svæðinu.Aðsend

„Sérstaða Korputúns felst meðal annars í því að vernda vatnsgæði Korpu, sem rennur frá Úlfarsfelli í gegnum svæðið, með gegndræpu yfirborði. Einnig verður fjölskrúðugt lífríki verndað með markvissu plöntuvali og að lágmarki 80% þakflata verða gróðurþakin. Gert er ráð fyrir gróðri um allt svæðið sem stuðlar að bættri líðan starfsfólks og gesta,“ segir í tilkynningunni.

Lögð verður áhersla á samgöngur og aðgengi um svæðið en þar verður gott framboð bílastæða og vandaðir hjóla- og göngustígar. Fyrirhugað er að Borgarlínan liggi um Korputún með stoppistöð við verslunarkjarnann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×