Innlent

Vísað á brott af hjúkrunar­heimilinu í annar­legu á­standi

Freyja Þórisdóttir skrifar
Tilkynning barst vakthafandi lögreglumönnum á stöð 2 en varðsvæði hennar nær yfir Breiðholt og Kópavog.
Tilkynning barst vakthafandi lögreglumönnum á stöð 2 en varðsvæði hennar nær yfir Breiðholt og Kópavog. Vísir/Anton Brink

Tilkynning barst lögreglunni á stöð 1 um að óboðinn aðili hefði valsað inn á hjúkrunarheimili í annarlegu ástandi en honum var vísað á brott. Á sama varðsvæði var tilkynnt um tvö innbrot en hrina innbrota hefur staðið yfir síðastliðnar vikur.

Lögreglan hafði í nægu að snúast í dag en frá því klukkan fimm í morgun og til klukkan fimm nú í kvöld voru hátt í hundrað mál skráð í kerfi lögreglunnar og í dag voru að minnsta kosti sjö vistaðir í fangageymslu.

Lögreglunni á Stöð 1, sem sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi, var tilkynnt um par í annarlegu ástandi á ónefndu hóteli en því var vísað þaðan út. Þá var lögreglan einnig kölluð til vegna aðila sem var til vandræða og í annarlegu ástandi en þegar lögregluna bar að garði reyndi hann að flýja en var þó að lokum handsamaður.

Kópavogur og Breiðholt heyra undir lögreglustöð 2 en óprúttnir aðilar brutust inn í skóla á varðsvæðinu. Í dagbók lögreglu kemur fram að hinir grunuðu hafi verið handteknir skömmu seinna og vistaðir í fangageymslu. Málið sé í rannsókn á stöðinni.

Á svæðinu bárust ýmsar aðrar tilkynningar og meðal þeirra var tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun, vinnuslys þar sem hlutust minniháttar áverkar á höfði og slys þar sem maður flaug af rafmagnshlaupahjóli og var fluttur á bráðamóttökuna til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×