Handbolti

Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópu­deild

Sindri Sverrisson skrifar
Valur vann FH í frábæru úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Bæði lið spila í Evrópudeildinni á komandi leiktíð.
Valur vann FH í frábæru úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Bæði lið spila í Evrópudeildinni á komandi leiktíð. vísir/Diego

Valur og FH, liðin sem léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta í vor, fengu í dag að vita hvaða liðum þau mæta í Evrópudeildinni í vetur.

Alls taka 32 lið þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og í dag var dregið í átta fjögurra liða riðla.

Lærisveinar Arons Pálmarssonar í FH drógust í riðil með Bidasoa frá Spáni, Limoges frá Frakklandi og Marítimo da Madeira frá Portúgal. 

Íslandsmeistarar Vals eru hins vegar í riðli með Mors-Thy frá Danmörku, Tatabánya frá Ungverjalandi og Grosist Slovan frá Slóveníu.

Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast áfram í keppninni sem nú er með breyttu fyrirkomulagi og tvinnast saman við Meistaradeild Evrópu.

Í útsláttarkeppninni verða því ekki aðeins liðin 16 sem komast úr riðlakeppni Evrópudeildarinnar heldur einnig 12 lið úr Meistaradeild Evrópu, eða alls 28 lið. Fjórtán lið komast svo áfram í 16-liða úrslit og þá bætast enn við tvö lið úr Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×