Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar 18. júlí 2026 14:32 Íslenska þjóðarsálin er í djúpri andlegri lægð. Svo rammt kveður að þessum sálfræðilegu innantökum að fjöldi manns treystir sér ekki til að opna jólapakka sína um næstu jól; ekki nokkur vegur. Ástæðurnar eru margvíslegar en ekki síst áhrif og kröftug málafylgja þeirra sem eru algjörlega á móti gjöfum, samningum og þess háttar glæframennsku manna á milli. Þeir hafa bent á að hinir varasömu pakkar hafa löngum verið með ákaflega hættulegu innihaldi þó þeir líti vel út við fyrstu sýn. Eða þá hitt, sem er engu betra, að í nefndum pökkum er jafnvel ekki neitt, allt gal tómt, sem veldur þeim sem fá sendinguna miklum vonbrigðum og jafnvel óbætanlegum andlegum skaða. Einhverjir hafa samt bent á að gjafir séu oftast jákvæð viðbrögð við góðum samskiptum við viðkomandi sem hafa glatt og framkallað einhvers konar þakkarviðbrögð. Hinir neikvæðu láta sér fátt um finnast enda er þeim mjög til efs að einhverjir geti hugsað hlýtt til þeirra og fært þeim gjafir eða hagstæða samninga af góðmennsku einni saman. Að semja við svo vafasama aðila um jákvæð samskipti er stór hættulegt því þeir hafi einlægt illt í huga í samskiptum og sæta lagi til að ræna og rupla hvenær sem færi gefst. Trúa einfaldlega ekki lengur á jákvætt hugarfar og alls ekki að það geti leitt gott af sér fyrir báða aðila. Telja það barnalega villu. Þvert á móti eru þeir helteknir af óviðráðanlegum ótta við að samningsvilji og jákvæð viðbrögð annarra séu liður í því að ná heljartökum á þér og kúga á alla vegu. Þess vegna sé skynsamlegast að hafa ekkert samband við slíka ódrætti og aldrei svo mikið sem líta í pakka sem frá þeim koma. Aldrei. Til þess að bíta svo höfuðið af skömminni hafa styrkir og aðstoð ESB við íslensk málefni lengi verið kallaðar mútur því auðvitað gengur þeim ekkert annað til en að ná heljartökum á okkur með stórfelldum peningagjöfum og kvelja síðan á alla lund. Til þess þarf að bera fé á okkur og við að þiggja eins og saklausir sauðir. Að þeirra dómi er sannleikurinn sá að ef við leggjum ekki nægjanlega rækt við tortryggnina er vísast að við glötum sjálfstæði okkar, fullveldi og persónulegum eiginleikum auk þess að þjóðin muni ganga í gegnum móðuharðindi af mannavöldum eins og sagt var í aðdraganda hins farsæla EES-samningsins. Besta leiðin til að forðast svo dapurleg örlög er auðvitað að leggja viðbrögð annarra ávallt út á versta veg, bæta frekar í þegar lóðin eru lögð á metaskálina frægu og gera sannleikanum ekki of hátt undir höfði. Til þess er allt of mikið í húfi, jafnvel sannleikurinn verður að víkja úr vegi því ógnin er svo yfirþyrmandi að glötun blasir við enda hafa leiðinlegar staðreyndir sjaldan verið hinum eina sanna málstað hliðhollar. Jafnvel nágrannar okkar á meginlandinu, sem við höfum átt mjög jákvæð samskipti við (sbr. EES-samninginn), eru taldir liggja á svikráðum og ætla greinilega að hirða allar auðlindir landsins eins og fiskimiðin og orkuna í fallvötnunum enda þótt engin dæmi séu um slíkan yfirgang í gjörvallri sögu ESB – aldeilis engin. Að samþykkja að ræða við svo hættulegt fólk frá Evrópu og láta reyna á hlutina er lagt að jöfnu við landráð, hvorki meira né minna. Af þessu öllu sprettur svo að margir eiga að stríða við andlega kreppu sem gerir þeim ókleift að greina rétt frá röngu, sannleika frá ósannindum. Að ekki sé nú talað um að fá skýra mynd af heildardæminu sem verður þá til þess að þetta góða fólk fer að óbreyttu í jólaköttinn enda hefur það ekki einu sinni þrek til að opna jólapakkana sína. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar