Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Samúel Karl Ólason skrifar 24. júlí 2026 14:50 Kínverskum fiskiskipum siglt á miðin. Getty/Costfoto, NurPhoto Hópur bandarískra þingmanna hefur farið fram á við ríkisstjórn Donalds Trump að refsiaðgerðum verði beitt til að reyna að stöðva umfangsmiklar og oft ólöglegar veiðar Kínverja sem kallaðar eru „vistmorð“. Peningar sem áttu að fara í eftirlit með þessum veiðum fóru í allt annað.
Hið „stóra og fallega“ fjárlagafrumvarp sem Repúblikanar samþykktu á þingi í fyrra innihélt um 170 milljóna dala fjárveitingu til eftirlits með ólöglegum fiskiskipaflotum Kínverja víða um heim. Ríkisstjórn Donalds Trump varði peningunum þó í aukna öryggisgæslu við heimsmeistaramótið, hátíðarhöld vegna 250 ára afmælis Bandaríkjanna og aðra viðburði. Peningarnir fóru til Heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna (DHS) og áttu að fara í verkefni sem gengur út á það að hafa eftirlit með stærðarinnar fiskiflotum frá Kína. Kínverjar hafa verið sakaðir um að nota þessi skip í þúsundatali til að veiða, oft á ólöglegum stöðum, fisk í svo miklu magni að þeir ógna fiskistofnum fjarri ströndum Kína. Afli skipanna er fluttur í móðurskip sem koma honum til hafnar í Kína og flotunum fylgja olíuskip, önnur birgðaskip og jafnvel spítalaskip. Veiðarnar eru því stanslausar. Ted Cruz, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, sagði í samtali við Punchbowl News að hann hefði viljað styrkja þetta verkefni en því miður hefðu fjármunirnir farið annað. Hann vildi ekki staðfesta í hvað peningarnir hefðu farið en aðrir heimildarmenn miðilsins sögðu þá hafa farið í áðurnefnda öryggisgæslu og viðburði. Peningunum var að mestu varið í drónavarnir, eða um 155 milljónum af 170. Bandaríska strandgæslan fékk rest. Cruz og aðrir þingmenn úr báðum flokkum þingsins sendu Scott Bessent, fjármálaráðherra í ríkisstjórn Trumps, bréf í gær þar sem farið var fram á það að refsiaðgerðum yrði beitt gegn 29 skipum sem Kínverjar nota til að styðja rekstur þessara fiskiskipaflota. Þingmennirnir segja að slíkar aðgerðir myndu gera Kínverjum mun erfiðara að gera út þessa flota. Áætlaður fjöldi skipanna í þessum flota hefur um árabil verið á reiki. Í bréfi þingmannanna segir að þau séu frá tvö til sextán þúsund talsins og er umfangsmiklum veiðum flotanna líkt við „vistmorð“. Þá segir í bréfinu að veiðarnar séu framkvæmdar með miklum brotum á mannréttindum þeirra sem að þeim koma. Ennfremur segir þar að flotinn á milli áranna 2022 og 2024 hafi staðið fyrir um 44 prósentum af veiðum í öllum heiminum og hann hefði verið notaður við veiðar í lögsögu níutíu ríkja. „Kínversk skip eru reglulega gómuð við að drepa hundruð dýra í útrýmingarhættu og ólöglega veitt hákarla, hvali og höfrunga. Þau hafa eyðilagt þúsundir ekra kóralrifa.“ Þingmennirnir halda því einnig fram að í flotunum sé notast við þrælkun og starfsmönnum sé reglulega misþyrmt líkamlega og þeir fái ekki greidd laun svo árum skipti. Þeir segja fiskiskipin svo mörg að erfitt sé að reyna að stöðva þau. Hins vegar gildi það ekki um móðurskipin og birgðaskipin sem notuð eru til að flytja aflann til Kína og styðja flotann. Þessi skip þurfi aðgengi að höfnum og viðskiptavinum um allan heim, séu í takmörkuðum fjölda. Með því að beita þau refsiaðgerðum væri mögulegt að draga verulega úr umfangi veiðanna.
Bandaríkin Donald Trump Kína Umhverfismál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira