Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Birgir Olgeirsson skrifar 29. júlí 2026 13:34 Sigrún Tryggvadóttir segir fundinn hafa staðfest að áhyggjur íbúa af innbrotahrinunni hafi átt við rök að styðjast. Sýn Óslegið gras, óklipptur gróður, ósópuð stétt og ljós sem aldrei kvikna geta gefið til kynna að hús standi autt. Lögregla hvetur íbúa miðborgarinnar til að láta hús líta út fyrir að vera í notkun þegar þeir fara í burtu.
Ráðleggingarnar voru kynntar á samráðsfundi borgaryfirvalda, lögreglu, íbúa og annarra viðbragðsaðila vegna innbrotahrinu í miðborg Reykjavíkur. Lögregla fór þar yfir atriði sem innbrotsþjófar gætu horft til þegar þeir veldu hús til að brjótast inn í. Illa hirt hús og umhverfi þar sem lítil merki sjást um umferð fólks gætu frekar orðið fyrir valinu. Lögregla hefur handtekið þrjá menn vegna innbrotahrinunnar og hefur innbrotum fækkað verulega í kjölfarið. Íbúum var meðal annars ráðlagt að slá gras, klippa gróður og sópa stéttir áður en þeir færu að heiman til lengri tíma. Þegar snjór væri yfir væri hægt að fá nágranna til að ganga að húsinu eða moka frá því. Einnig væri ráðlegt að fá nágranna til að færa bíla og nota tímastilla til að láta ljós kvikna og slokkna. Fólk ætti að láta nágranna vita þegar það færi í burtu og gera þeim viðvart ef vart yrði við grunsamlegar mannaferðir eða innbrot í nágrenninu. Lögregla benti jafnframt á að innbrotsþjófar gætu snúið aftur að húsum þar sem auðvelt hefði reynst að komast inn. Íbúar kölluðu eftir aðgerðum Fundurinn var haldinn í gær, viku eftir að Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur sendu borgarstjóra erindi vegna stöðunnar. Sigrún Tryggvadóttir formaður samtakanna segir íbúa hafa verið uggandi. „Það var ákall frá íbúum og okkur fannst bara ekki nógu mikið gert. Þetta voru tölur á blaði og við vildum fá aðgerðir,“ segir Sigrún. Um miðjan júlí hafði lögreglu borist 61 tilkynning um innbrot frá mánaðamótum. Þar af voru 45 á varðsvæði lögreglustöðvar eitt, sem nær yfir Vesturbæ, miðborg, Hlíðar, Laugardal, Háaleiti og Seltjarnarnes. Garðsláttur er sagður hluti af nágrannavörslu þegar húsráðendur dvelja að heimanendur um lengri tíma.Anton Brink Um þrjátíu tilvikanna tengdust miðborginni sjálfri, samkvæmt upplýsingum sem kynntar voru á fundinum. Eins og Vísir greindi frá 14. júlí höfðu innbrotin verið framin bæði í heimahúsum og fyrirtækjum. Þunginn á Skólavörðuholti Á korti sem lögregla kynnti var þunginn á Skólavörðuholti og í þéttum hluta Þingholtanna. Sigrún segir dreifingu brotanna eftir tíma sólarhrings einnig hafa vakið athygli. „Það er mest verið að fara inn á nóttunni en það er líka verið að fara inn á daginn,“ segir hún. Nágrannavarsla og myndavélaeftirlit Borgaryfirvöld og lögregla ætla að vinna áfram að eflingu nágrannavörslu og myndavélaeftirlits. Borgarstjóri kynnti hugmyndir að formlegu nágrannavörsluverkefni sem verður útfært og kynnt síðar. Íbúum voru jafnframt afhentir límmiðar tengdir nágrannavörslu. Að loknum erindum fengu fundargestir tækifæri til að ræða beint við lögreglu og aðra viðbragðsaðila. Sigrún segir samtal milli nágranna og upplýsingamiðlun innan hverfisins mikilvægan þátt í að auka öryggi íbúanna. Hún fagnar því hversu hratt var brugðist við og segir málið hafa verið tekið alvarlega. Innbrotahrinan dottið niður Þrír menn hafa verið handteknir vegna innbrotahrinunnar. Sigrún vísar til talna sem lögregla kynnti á fundinum: „Lögreglan sýndi okkur að innbrotafaraldur hefur dottið alveg niður eftir að þeir handtóku þessa þrjá. Og auðvitað er það gott að vita.“ Hún segir þó mikilvægt að velferðarkerfið taki við í framhaldinu svo ekki skapist hætta á að innbrotum fjölgi á ný.
Lögreglumál Garðyrkja Reykjavík Mest lesið Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Veður Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Erlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni Innlent Kallar fylkiskosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Erlent Fleiri fréttir Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Sjá meira