Körfubolti

LeBron fram­leiðir „Last Dance“ heimildarþætti

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Mun LeBron James enda ferilinn með meistaratitli? 
Mun LeBron James enda ferilinn með meistaratitli?  Luke Hales/Getty Images

LeBron James er að ganga frá samkomulagi við ESPN um framleiðslu á heimildarþáttum í anda „The Last Dance“ hjá Michael Jordan.

Tíu þátta serían sem var gerð um Jordan og kom út í miðjum Covid faraldri árið 2020 naut gríðarlegra vinsælda. Þar fengu áhorfendur innsýn í hvað gekk á bakvið tjöldin á síðasta tímabili Jordan hjá Chicago Bulls og yfirferð um alla sex meistaratitlana sem hann vann.

LeBron er nýbúinn að ganga frá tveggja ára samningi við Philadelphia 76ers, sem hann segir að verði síðasta stoppið á ferli sem spannar rúmlega tvo áratugi hjá Cleveland Cavaliers, Miami Heat og Los Angeles Lakers.

The Athletic greinir frá því að heimildarþættirnir um síðustu tímabil LeBron muni einnig skyggnast bakvið tjöldin og sýna frá öllum ferli hans í NBA deildinni, með áður óséðu myndefni. Enda hefur myndatökulið fylgt LeBron eftir síðan hann var enn í menntaskóla og úr nægu að taka.

Óvíst er hvenær þættirnir verða gefnir út og að sjálfsögðu er ekki vitað hvort þeir endi með meistaratitli eins og í tilfelli Jordan hjá Bulls.

LeBron James og Michael Jordan eru af flestum taldir tveir bestu körfuboltamenn sögunnar. Líklega munu þættirnir um LeBron ekki fylgja nákvæmlega sömu uppskrift og gert var með Jordan en engu að síður verða þeir bornir saman, líkt og LeBron hefur upplifað allan sinn feril.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×