Innlent

Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi

Freyja Þórisdóttir skrifar
Lögreglan hafði í nægu að snúast í nótt en meðal annar voru tveir aðilar handteknir í miðbæ Reykjavíkur fyrir vopnaburð.
Lögreglan hafði í nægu að snúast í nótt en meðal annar voru tveir aðilar handteknir í miðbæ Reykjavíkur fyrir vopnaburð. Vísir/Lýður Valberg

Tilkynnt var um tvo vopnaða aðila í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt en að sögn tilkynnanda voru þeir ógnandi og árásargjarnir. Annar þeirri reyndist vopnaður öxi og hinn hamri en þeir voru handteknir og færðir á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Lagt var hald á vopn í málinu en ekki liggur fyrir hvort bæði öxin og hamarinn hafi verið haldlögð.

Er þetta meðal þess helsta sem skráð var í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan 17:00 í gær og þar til klukkan 05:00 í morgun en enginn gisti í fangageymslu lögreglu fram undir morgun.

Í sama umdæmi og tilkynningin barst um mennina var lögreglu gert viðvart um kannabislykt í stigahúsi. Lögreglufulltrúar frá Stöð 1, sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi, fóru og athuguðu málið en tilkynningin reyndist ekki reist á rökum.

Keimlík umferðaróhöpp í sama umdæmi

Þá eru þrír grunaðir um að hafa stolið hörðum disk af hóteli en þjófnaðurinn fór fram á hóteli í miðbæ Reykjavíkur. 

Fjöldi ökumanna var stöðvaður við akstur og voru að minnsta kosti tveir handteknir fyrir grun um akstur undir áhrifum. Voru þeir fluttir á lögreglustöð þrjú, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, en þeir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.

Þá bárust lögreglufulltrúum á stöð 4, sem sér um verkefni í Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ, tvö umferðaróhöpp. Annað var í hverfi 270 en hitt í hverfi 110 og það sama á við um bæði: enginn slasaðist en tvær bifreiðar voru mikið skemmdar eftir slysin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×