Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. ágúst 2026 11:01 Kærustuparið Arna Magnea Danks og Magdalena Lukakiak tóku þátt í gleðigöngunni á mótorhjóli á laugardaginn og svo lenti Arna í slysi á mótorhjólinu daginn eftir. Aðsend/Vísir/Viktor Áhættuleikkonan Arna Magnea Danks lenti í mótorhjólaslysi á sunnudaginn, fótbrotnaði illa og þarf að fara í tvær aðgerðir. Hún var á mótorhjólinu í Gleðigöngunni á laugardaginn og var á leið með það í bílskúr þegar hún lenti í slysi á Sæbrautinni.
Arna greindi frá slysinu með myndbandi á samfélagsmiðlum í gær. Í myndbandinu liggur hún á sjúkrarúmi á Landspítalanum með kærustu sína, Magdalenu Lukasiak, sér við hlið. „Okkur þykir leitt að vera ekki í Trans kirkjunni í dag því okkur langaði virkilega að vera þar og styðja við okkar frábæra samfélag, alveg eins og það styður okkur. Síðbúin hinseginkveðja, gærdagurinn var æðislegur en í dag var ég að keyra græna hjólinu aftur í bílskúrinn og lenti í slysi,“ sagði Arna í myndbandinu. Arna er trans kona og hefur vakið athygli fyrir baráttu sína fyrir trans réttindum síðustu ár.Vísir/Viktor „Ég braut illa á mér fótlegginn, vinstri fótlegginn, þannig ég þarf að fara í aðgerð. Ég fer í tvær aðgerðir, fyrst núna eftir tæpan klukkutíma og svo aðra eftir nokkrar vikur. En við tvær sendum miklum ást héðan frá spítalanum. Og ég vil segja að starfsfólkið hér á Landspítalanum er allt æðislegt,“ sagði hún. Magdalena þakkaði síðan starfsfólki Landspítalans enn og aftur og sömuleiðis fjölskyldu þess sem lenti í slysinu með Örnu. Magdalena deildi síðan myndbandi Örnu á sinni síðu og þakkaði þar aftur fyrir. „Hinsegin stríðsdrottningin mín. Takk allir sem stoppuðu á Sæbrautinni. Fólkið sem gaf mér belti til að stoppa blæðinguna, fólkið sem sá um son minn á vettvangi og lögregla og slökkviliðsmenn,“ skrifaði hún við deilinguna. Bekyk hierdie plasing op Instagram 'n Plasing gedeel deur Arna Magnea Danks (@arnamagneadanks)
Samgönguslys Hinsegin Reykjavík Tengdar fréttir Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Hápunktur hinsegin daga fór fram í dag þegar Gleðigangan var gengin í Reykjavík frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og endaði með útitónleikum í Hljómskálagarðinum. 8. ágúst 2026 21:19 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fleiri fréttir „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Sjá meira
Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Hápunktur hinsegin daga fór fram í dag þegar Gleðigangan var gengin í Reykjavík frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og endaði með útitónleikum í Hljómskálagarðinum. 8. ágúst 2026 21:19
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“