Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. ágúst 2026 08:33 Trump talaði við nemendur lögregluskóla. AP/Rod Lamkey, Jr. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að gera Hormússundið, sem er við Íran, að yfirráðasvæði Bandaríkjanna. Friðarsamningur milli ríkjanna er enn ekki í höfn.
Þetta tilkynnti forsetinn í ræðu sinni í lögregluskólanum í New York-fylki sem hann hélt í gær. Þar sagði hann að Bandaríkin myndu taka yfir svæðið fljótlega en fimmtungur allrar olíu er siglt um sundið. Lokað hefur verið að mestu fyrir umferð um sundið frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu að gera árásir á Íran í febrúar. Sex mánuðum síðar er enn langt í land í friðarviðræðum á milli Bandaríkjanna og Íran. Bandaríkjamenn hafa sett herkví á strendur Írans til að reyna að hafa áhrif á efnahagsástand landsins. „Eftir að við sigrum Íran, sem er að bíða mikinn ósigur, mun ég bráðlega tilgreina Hormússundið sem yfirráðasvæði Bandaríkjanna,“ sagði Trump samkvæmt The Guardian. „Í rauninni er það það sem það er. Við erum með herkvína. Engin skip komast í gegn nema við viljum það.“ Erfiðlega hefur gengið að ná sáttum í vopnahlésviðræðum á milli Bandaríkjanna og Íran. Trump dró enn úr líkunum á því að samningur myndi nást í bráð þegar hann krafðist þess að klerkastjórnin í Íran myndi greiða skaðabætur vegna þeirra sem ríkisstjórnin hefði banað í stríðum, árásum og mótmælum í gegnum árin. Sömuleiðis ættu Íranir að greiða íbúum Líbanon, Sýrlands, Jemen og Gasastrandarinnar skaðabætur. Þetta voru viðbrögð Trumps við því að Íranir fóru sjálfir fram á skaðabætur vegna árásanna á þá og vildu að refsiaðgerðir yrðu felldar niður.
Donald Trump Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira