Brotist inn í garnverslun í Árbæ Lovísa Arnardóttir skrifar 17. ágúst 2026 08:23 Notaður var steinn til að brjóta rúðuna. Handverkskúnst Brotist var inn í garnverslunina Handverkskúnst í Árbænum um helgina. Innbrotsþjófurinn var handtekinn á vettvangi.
Í tilkynningu frá versluninni kemur fram að innbrotið hafi átt sér stað snemma morguns og þjófurinn leitað í peningakassanum en lítið fundið. Hann var handtekinn á vettvangi en bæði lögregla og starfsfólk Öryggismiðstöðvar voru kölluð til. „Einhver ógæfumaður náði að brjóta rúðuna með því að kasta í hana stóru grjóti og skríða svo inn um gatið. Hann var ekki að falast eftir garni heldur skiptimyntinni í kassanum. Hann hafði ekki mikið upp úr krafsinu því kassinn er tæmdur daglega,“ segir í tilkynningu verslunarinnar. Glerið í hurðinni var alveg ónýtt. Handverkskúnst Í færslu eiganda, Elínar Guðrúnar Guðrúnardóttur, kemur fram að hún hafi sofið innbrotið af sér en að móðir hennar, Guðrún María Guðmundsdóttir, hafi verið vöknuð snemma og svarað Öryggismiðstöðinni sem hafði hringt lögregluna út. „Hún reyndi að hringja í mig, Elínu, en ég steinsvaf í gegnum þetta allt saman. Guðmunda systir vaknaði hins vegar og var svo yndisleg að mæta á staðinn og ganga frá öllu. Systursynir mínir höfðu miklar áhyggjur af því hvað hefði orðið um stóra steininn og fór Petrea systir með þá í vettvangsferð í dag til að skoða grjótið „góða“. Við fengum þessa fínu viðarplötu í staðinn fyrir rúðuna en vonum að henni verði skipt út sem fyrst. Sem betur fer urðu ekki aðrar skemmdir á búðinni en það,“ segir Elín og að innbrotið hafi ekki áhrif á opnun í dag. Töluvert hefur verið fjallað um innbrotahrinu í Reykjavík í sumar, en þó aðallega í miðbænum.
Lögreglumál Reykjavík Hannyrðir Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira