Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 20. ágúst 2026 08:41 Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri telur að ef kæmi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið mynd það ekki hafa áhrif á stýrivexti eða verðbólgu. Vísir Hagkerfið sýnir víða merki um kólnun en Seðlabankinn hækkaði engu að síður stýrivexti í dag. Seðlabankastjóri vísar til aukinnar verðbólgu, meðal annars vegna hækkunnar opinberra gjalda og stríðsátaka. Ráðherra segir ákvörðunina vonbrigði
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú átta prósent. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Verðbólga mælist nú 5,3 prósent eða ríflega tvöfalt meiri en verðbólgumarkmið Seðlabankans. Tveir áhrifaþættir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir tvö atriði helst hafa áhrif. „Þetta er aðallega vegna hækkunar á opinberum útgjöldum og á olíuverði og fleiri innfluttum þáttum vegna stríðsátaka sem hafa tekið verðbólguna yfir fimm prósent,“ segir Ásgeir. Í skýrslu Peningastefnunefndar sem kom út samfara ákvörðuninni kemur m.a. fram að einkaneysla er minni en búist var við, atvinnuleysi eykst á almennum vinnumarkaði og verð á húsnæði og matvöru gefur aðeins eftir á meðan almenn þjónusta og innfluttar vörur hækka. Úr riti Peningastefnunefndar.Vísir Ísland með hæstu launin Aðilar vinnumarkaðarins hafa gefið út að forsendur kjarasamninga gætu verið brostnar því verðbólgan sé yfir samningsmarkmiðum. Þó gætir líka bjartsýni. Ásgeir kallaði eftir ábyrgð af hálfu vinnumarkaðarins á fundinum í dag. „Nú er Ísland komið með hæstu laun í Evrópu. Hvað getum við haldið áfram lengi. Ég óska eftir samfylgd. Þetta á bæði við um atvinnurekendur og verkalýðsfélög. Ef þau vilja sjá lægri vexti eru ákveðnir hlutir sem þau geta gert,“ segir Ásgeir. Hið opinbera þurfi að halda að sér höndum Ásgeir sendir líka opinberum stofnunum, ríki og sveitarfélögum, tóninn. „Hið opinbera hefur leitt launahækkanir. Nú erum við að sjá störfum fækka hjá einkaaðilum en fjölga í opinbera geiranum. Það er mikilvægt að sjá hið opinbera taka á þessum hlutum,“ segir hann. Aðildarviðræður hafi ekki áhrif Aðspurður hvort það muni hafa áhrif á verðbólgu eða stýrivexti ef þjóðin ákveður að ganga á ný til aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst svara Ásgeir. „Við álítum það ekki. Það mun mögulega koma meira innflæði fjármagns ef það kemur til aðildarviðræðna en að öðru leyti teljum við þær ekki hafa áhrif,“ segir Ásgeir.
Seðlabankinn Íran Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Atvinnurekendur Fjármálafyrirtæki Fjármál heimilisins Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira