Handbolti

Landsliðskona í Val

Stefán Árni Pálsson skrifar
Katla mun styrkja Val til muna.
Katla mun styrkja Val til muna. Mynd/valur

Handboltakonan Katla María Magnúsdóttir hefur gengið til liðs við Val en félagið greinir frá því á samfélagsmiðlum í kvöld.

Katla María, sem er rétthent skytta, kemur heim frá Danmörku þar sem hún spilaði síðasta vetur með Holstebro.

Katla María spilaði lengi vel hér heima við góðan orðstír, bæði með Stjörnunni og Selfossi, sem er uppeldisfélag Kötlu. Þá var hún einnig í A-landsliði Íslands og tók meðal annars þátt í heimsmeistaramótinu sem haldið var í Stafangri árið 2023.

„Ég er virkilega ánægður að Katla María hafi ákveðið að taka slaginn með okkur í vetur. Hún er frábær handboltakona, með mikinn kraft og mun styrkja liðið mikið. Hún er einnig flott fyrirmynd og leiðtogi. Hún kemur með mikil gæði í hópinn og á eftir að vera góð viðbót við hópinn okkar,” sagði Anton Rúnarsson, þjálfari liðsins, í yfirlýsingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×