Síminn orðinn Ásar hf Sigurgeir Þorkelsson skrifar 20. ágúst 2026 18:33 María Björk, áður forstjóri Símans, nú forstjóri Ása, lætur klingja í Kauphallarbjöllunni frægu. Innsent Hluthafafundur Símans hf. samþykkti í dag að breyta nafni samstæðunnar í Ásar hf. Félagið hefur staðið í stórræðum síðasta árið en í desember síðastliðnum var tilkynnt um kaup þess á bæði Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands. Það var svo í júlí síðastliðnum sem kaup Ása á Greiðslumiðlun Íslands gengu í gegn.
Kaup Ása hf. á Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands voru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Opin kerfi sérhæfa sig í sölu, ráðgjöf og þjónustu á sviði búnaðar- og hugbúnaðarlausna fyrir fyrirtæki og stofnanir. Öryggismiðstöð Íslands er að sama skapi þjónustu- og tæknifyrirtæki á sviði öryggismála. Umbreytingar á fjarskiptamarkaði Það er því umtalsverður umbreytingarfasi sem býr að baki nafnabreytingu Landsímans aldna. Má í hræringum á fjarskiptamarkaði að einhverju leyti sjá svipaða þróun verða og hafði árin áður orðið á smásölumarkaði með tilurð félaga eins og Dranga og Festis. Nova klúbburinn hf. hefur aðlagað sig að breyttum markaðsaðstæðum fjarskiptafyrirtækja, til að mynda með kaupum á hugbúnaðarfyrirtækinu Ofar sem greint var frá í febrúar síðastliðnum. Yfirstandandi eru viðræður milli Ása (áður Símans) og Sýnar um kaup á útvarps- og vefmiðlum þess síðarnefnda, þar á meðal Vísi. Forstjórinn María Björk greindi frá því í morgun á hluthafafundi að hún hefði engar nýjar upplýsingar að veita málið. Með breyttu skipulagi samstæðunnar er fjarskipta- og miðlarekstur færður í nýtt dótturfélag, sem mun heita Síminn ehf., en hlutverk móðurfélagsins Ása verður að styðja við áframhaldandi vöxt og þróun, að því er segir í tilkynningu. „Ásar eru nýtt afl á markaði. Nafnabreytingin er stórt skref í enn stærra verkefni, en orðið vísar í áherslu okkar á agaðan vöxt í fleiri áttir sem hverfist ávallt um skýran miðpunkt í traustri og öruggri stafrænni þjónustu,“ er haft eftir Maríu Björk Einarsdóttur, forstjóra Ása, í tilkynningu. Segja mikil tækifæri fram undan Segir hún gríðarmikil tækifæri felast í sameinaðri fjártæknistarfsemi samhliða kaupum á Greiðslumiðlun Íslands. Horft sé til erlendra fyrirtækja á borð við Revolut, Klarna, Ramp og Fresha á sviði fjártæknilausna. „Mörkin milli ólíkra greina í annarri stafrænni þjónustu hreyfast hratt. Við teljum þess vegna mikil tækifæri felast í öðrum kynntum yfirtökuverkefnum sem geta skapað enn meira virði fyrir viðskiptavini, starfsfólk og hluthafa Ása.“ María segir ánægjulegt að þessar breytingar standi yfir á 120 ára afmæli Símans, sem haldið verði upp á í næstu viku. „Þrátt fyrir að samstæðan taki breytingum munum við tryggja að Síminn haldi áfram að vaxa og dafna, enda byggir hann á sterkum grunni; áratuga sögu af uppbyggingu og rekstri fjarskiptainnviða á Íslandi, sem einkennist af frumkvöðlastarfi, trausti og öryggi í rekstri,“ segir María í tilkynningunni.
Fjarskipti Kauphöllin Síminn Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira