Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Árni Sæberg skrifar 21. ágúst 2026 16:34 Maðurinn er meðal annars grunaður um að ráðast á móður sína í anddyri lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið ákærður fyrir mikinn fjölda brota, þar á meðal gróf brot gegn eigin móður. Hann er meðal annars ákærður fyrir stórfellda líkamsárás gagnvart móður sinni og fjölda hótunarbrota.
Þetta segir í ákæru Héraðssaksóknara á hendur manninum en aðalmeðfer í máli hans fer fram í næstu viku. Samkvæmt ákærunni er hann sakaður um fíkniefnalagabrot í fimm ákæruliðum, fyrir að hafa haft smáræði af hinum ýmsu fíkniefnum í fórum sínum. Hann er einnig ákærður fyrir vopnalagabrot fyrir að hafa haft hníf á sér á almannafæri í sjö skipti. Vopnað rán Þá er hann ákærður fyrir þjófnað og hótanir með því að hafa í mars 2026 stolið kjötvörum úr Nettó að Þönglabakka og þegar öryggisvörður ætlaði að stöðva för hans úr versluninni hafi hann ógnað honum með hnífi og hótað að stinga hann. Skömmu síðar hafi hann komið aftur í verslunina og hótað að stinga öryggisvörðinn. Hann er einnig ákærður fyrir þjónað, með því að hafa brjótast inn í tvær mismunandi verslanir í Hveragerði sama daginn í mars síðastliðnum og stela þaðan ýmsu smáræði. Ítrekur brot gegn eigin móður Þá er hann ákærður fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa á endurtekinn hátt ógnað lífi, heilsu og velferð móður sinnar. Hann er meðal annars ákærður fyrir að hafa ráðist á móður sína í tvígang. Í fyrra skiptið er hann talinn hafa veist að móður sinni í anddyri lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu, fyrir framan lögreglumenn sem handtóku hann í kjölfarið. Þremur dögum síðar er maðurinn talinn hafa reynt að taka farsíma að móður sinni, og til þess hafi hann dregið hana úr sófa niður á gólf. Þá hafi hann einnig kastað vatnsflösku í ljósmyndaramma sem brotnaði. Þá er hann ákærður fyrir ítrekuð hótunar brot gegn móður sinni, með því að viðhafa eftirfarandi ummæli: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ „Ef þú ætlar að láta svona fokking við mig þá veistu það að núna ertu búin að ganga svo langt en þú veist ég er sonur þinn en þú munt fá að finna fyrir því ef þú rekur mig út úr íbúðinni og gerir mig heimilislausan og endarðu kannski með afsagaða haglabyssu upp við fokking hausinn á þér“ „Ég læt kasta molotov sprengju í húsið hjá þér og C, ef þú hættir þessu ekki að þá mun molotov sprengjum rigna yfir hús fjölskyldumeðlima, þetta er allt undir þér komið“ „Ég mun drepa þig“ „Þannig ég get komið hérna og barið þig í klessu“ Athygli vekur að fyrir hönd móðurinnar er gerð krafa um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 135 þúsund króna og að honum verði gert að greiða málskostnað hennar. Aftur á móti er ekki gerð miskabótakrafa.
Lögreglumál Dómsmál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira