Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju Áróra L Davíðsdóttir skrifar 23. ágúst 2026 13:48 Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglu hafa haldið úti töluverðu eftirliti sem beindist sérstaklega að ungmennum. Samsett Lögregla hafði afskipti af á fjórða tug ungmenna vegna unglingadrykkju. Mikill erill var í miðbæ Reykjavíkur í gær vegna Menningarnætur en lögregla segir kvöldið og nóttina hafa gengið vel. „
Við vorum auðvitað mjög vel mönnuð, með góða yfirsýn og hérna, þetta gekk bara mjög vel hjá okkur, bæði kvöldið og nóttin,“ segir Jóhann Karl Þórisson aðstoðaryfirlögregluþjónn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla hélt úti töluverðu eftirliti sem beint var sérstaklega að unglingum og ungmennum. „Við vorum bara með öflugt eftirlit sem beindist sérstaklega að unglingum og unglingadrykkju. Við vorum með gönguhópa, reiðhjólahópa og með dróna á lofti.“ Þrátt fyrir rigningu var margt um manninn í miðborginni í gær.Vísir/Viktor Freyr Lögregla hafi haft afskipti og hellt niður áfengi á fjórða tug ungmenna. Í kjölfarið hafi verið haft samband við foreldra ungmennanna. „Við vorum að hella niður áfengi af krökkunum þegar það fannst. Þetta voru einhver þrjátíu, fjörutíu sem við helltum niður hjá og haft var samband við foreldra. Við stigum inn í hópamyndanir og leystum þær upp eftir fremsta megni og svo vorum við með eftirlit með skemmtistöðum.“ Tveir skemmtistaðir rýmdir og lokað Greint var frá því í morgun að tveimur skemmtistöðum í miðborginni hefði verið lokað en í ljós kom við eftirlit lögreglu að töluvert af ungmennum undir lögaldri hafði verið saman komin. „Það voru tveir staðir þar sem talsverður fjöldi krakka undir tuttugu ára aldri var samankominn. Þannig það var bara ekkert um annað að gera en að rýma staðinn og loka þeim.“ Staðirnir hafi ekki verið opnaðir á ný fyrr en í dag en lögregla vilji ekki gefa upp um hvaða staði sé að ræða. Heimildir fréttastofu herma að skemmtistaðurinn og kaffihúsið Prikið á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis hafi verið einn staðanna sem hafi verið lokað og rýmdur. Einn sendur á slysadeild vegna líkamsárásar Auk þess voru þrír handteknir í miðbæ Reykjavíkur vegna líkamsárásar í gærkvöldi. Þrír menn hafi ráðist og eggvopnum og hnúajárni hafi verið beitt. Þolandi hafi verið á slysadeild en var ekki með alvarlega áverka, svo sem stungusár, að sögn Jóhanns. Eftir að lögreglu var tilkynnt um málið munu allir hlutaðeigandi hafa flúið vettvang. Þrír voru handteknir vegna málsins og sé það í rannsókn. Mennirnir verði yfirheyrðir„einhvern tímann fljótlega,“ segir Jóhann. „Þeir voru væntanlega allir undir einhverjum áhrifum.“
Lögreglumál Menningarnótt Áfengi Börn og uppeldi Reykjavík Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira