Viðskipti innlent

Samninga­við­ræðum Sýnar og Símans lokið án sam­komu­lags

Freyja Þórisdóttir skrifar
 Heildarvirði vef- og útvarpsmiðla Sýnar er sagt um 5,2 milljarðar króna.
 Heildarvirði vef- og útvarpsmiðla Sýnar er sagt um 5,2 milljarðar króna. Vísir

Þann 12. mars 2026 var tilkynnt um undirritun Sýnar hf. (Sýn) og Ása hf. (Ása) á skilmálaskjali um kaup Ása á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Frestur samkvæmt skilmálaskjalinu til að ljúka gerð endanlegs kaupsamnings og annarrar nauðsynlegrar skjalagerðar er nú liðinn án þess að kaupsamningur hafi verið undirritaður.

Er þetta meðal þess sem fram kemur í Sýnar til Kauphallar en þar segir einnig að samkomulag um einkarétt Ása til samningaviðræðna sé þar með fallið niður og samningaviðræðum lokið.

Sýn hafi uppfyllt forsendur skilmálaskjalsins, þar á meðal forsendur fyrir umsömdu kaupverði sé lúta að tekjum og rekstrarafkomu einingarinnar.

Vefmiðlar og útvarpsstöðvar félagsins séu öflugar einingar í góðum rekstri og munu áfram styðja við kjarnastarfsemi þess. Niðurstaðan hafi engin áhrif á útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026.

Vísir er í eigu Sýnar.


Tengdar fréttir

Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum

Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×