Erlent

Færir Selenskí eldflaugateikningar

Samúel Karl Ólason og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, á lestarpallinum í Kænugarði, þar sem Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, tók á móti honum. Hægra megin á myndinni má sjá Valerí Salúsjní, fyrrverandi yfirherforingja Úkraínu, og núverandi sendiherra Úkraínu í Bretlandi.
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, á lestarpallinum í Kænugarði, þar sem Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, tók á móti honum. Hægra megin á myndinni má sjá Valerí Salúsjní, fyrrverandi yfirherforingja Úkraínu, og núverandi sendiherra Úkraínu í Bretlandi. AP/Henry Nicholls

Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, ferðaðist í morgun til Kænugarðs í Úkraínu. Er það hans fyrsta opinbera heimsókn frá því hann tók við embætti í síðasta mánuði en þangað fór hann með teikningar af breskum og frönskum stýriflaugum sem hann ætlar að afhenda Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu.

Forsætisráðherrann mun einnig funda með öðrum ráðherrum úr Bandalagi hinna viljugu þjóða sem hafa staðið við bak Úkraínumanna gegn innrásarher Rússa. Heimsóknina ber upp á þjóðhátíðardag Úkraínumanna.

Teikningarnar eiga að gera Úkraínumönnum kleift að framleiða eldflaugarnar sjálfir en þær voru hannaðar af Bretum og Frökkum á árum áður. Í Bretlandi heita þær Storm Shadow en þær heita Scalp í Frakklandi.

Úkraínumenn hafa sett aukið púður í árásir sínar á rússneskt landsvæði og með slíkum langdrægum flaugum myndi geta þeirra til slíkra árása aukast til muna.

Bretar hafa verið meðal dyggustu stuðningsmanna Úkraínu frá því innrás Rússa hófst. Þeir voru fyrstir til að senda Úkraínumönnum bæði vestræna skriðdreka og vestrænar eldflaugar. Úkraínumenn notuðu einnig á dögunum í fyrsta sinn, svo vitað sé, breska dróna til árása í Rússlandi.

Ráðamenn í Rússlandi hafa varað Breta við því að stuðningurinn muni hafa afleiðingar.

Storm Shadow-eldflaugarnar drífa rúmlega 250 kílómetra.

Úkraínumenn hafa þróað sínar eigin stýriflaugar sem kallast Flamingo. Þær drífa bæði lengra en Storm Shadow-flaugarnar og geta borið meira af sprengiefnum. Bresku og frönsku flaugarnar eru þó nákvæmari en þær úkraínsku og eru hannaðar til að granda betur vörðum skotmörkum. Það er að segja, að þær eru betri í að sprengja styrktar byggingar og neðanjarðarbyrgi.

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hafði áður samþykkt fyrir rúmum mánuði að Úkraínumenn mættu fá teikningarnar. Burnham mun svo afhenda Úkraínumönnum, eða heimila forsvarsmönnum breska fyrirtækisins MBDA að afhenda Úkraínumönnum, leynilegar teikningar af breskum íhlutum í stýriflaugarnar.

Þá munu Úkraínumenn, með aðstoð Frakka samkvæmt frétt Reuters, geta sett upp eigin framleiðslu á eldflaugunum.

Macron tilkynnti einnig á dögunum að Frakkar ætluðu að senda flugskeyti í loftvarnarkerfi til Úkraínu. Forsetinn hefur einnig gefið út að Úkraínumenn megi framleiða frönsk flugskeyti sjálfir og þá sérstaklega Aster 30-flugskeyti, sem geta verið notuð til að reyna að skjóta niður rússneskar skotflaugar.

Varnarleysi Úkraínumanna gegn þeim er eitt stærsta vandamál þeirra þessa dagana.

Vinna að því að framleiða eigin skotflaugar

Úkraínumenn hafa lagt mikið púður í að auka á árásir sínar í Rússlandi með sífellt meiri framleiðslu á langdrægum sjálfsprengidrónum og stýriflaugum. Þeir hafa einnig unnið að því að þróa og framleiða eigin skotflaugar.

Drónar og stýriflaugar fljúga tiltölulega lágt með jörðu á leið til skotmarka sinna og er hægt að granda þeim með ýmsum leiðum. Skotflaugar fljúga hins vegar hátt til himins eða upp í gufuhvolfið og falla til jarðar á gífurlegum hraða, þar sem þær lenda á skotmörkum sínum.

Sjá einnig: Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða

Rússar myndu eiga mun erfiðara með að verjast skotflaugaárásum Úkraínumanna en þær gætu einnig borið stærri sprengjuodda en drónar og stýriflaugar ráða við.

Fyrr á árinu sögðu ráðmenn í Bretlandi frá því að Úkraína og Bretland hefðu gert samkomulag um þróun og framleiðslu skammdrægra skotflauga í Bretlandi.

Sjá einnig: Bretar ætla að framleiða skotflaugar fyrir Úkraínu

Samkvæmt yfirlýsingunni eiga skotflaugarnar að geta borið tvö hundruð kíló af sprengiefnum og hæft skotmörk í rúmlega fimm hundruð kílómetra fjarlægð. Verkefninu er einnig ætlað að bæta hergagnaframleiðslu í Bretlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×