Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Samúel Karl Ólason skrifar 2. september 2026 14:24 Sjálfsprengidróni fannst við hliðina á úkraínskri fraktflugvél á Leipzig/Halle flugvellinum í síðasta mánuði. S'a flugvöllur hefur lengi verið notaður til hergagnaflutninga til Úkraínu. EPA/FILIP SINGER Þýskir rannsakendur telja sig hafa borið kennsl á tvo menn sem grunaðir eru um að hafa reynt fjölþáttaárás á Leipzig/Halle-flugvellinum í síðasta mánuði. Annar er sagður vera Rússi með vegabréf frá Lettlandi en hinn er frá Belarús og með rússneskt vegabréf.
Ráðamenn í Þýskalandi beindu spjótum sínum í gær að yfirvöldum í Rússlandi og sögðu þau bera ábyrgð á árásartilrauninni á flugvellinum. Þann 4. ágúst sá starfsmaður á umræddum flugvelli dróna nærri úkraínskum fraktflugvélum en flugvöllurinn hefur lengi verið notaður til hergagnaflutninga til Úkraínu. Sprengibúnaður drónans, sem bar öflugt plastsprengiefni, var bilaður og sprakk hann því ekki. Talið var að flugvél í eigu DHL hefði einnig verið flogið á dróna yfir flugvellinum um svipað leyti. Þá er bent á í frétt DW að í síðustu viku sögðu þýskir fjölmiðlar frá því að þriðji dróninn, sem bar einnig sprengiefni, hefði fundist á flugvellinum. Það þykir mikil mildi að engan hafi sakað. Sjá einnig: Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Þýskir blaðamenn hafa nú komið höndum yfir upplýsingar um að rússneski maðurinn með lettneska vegabréfið hafi ferðast til Þýskalands í lok júlí. Hann hafi lent í Berlín en farið rakleiðis til Leipzig. Tveimur dögum áður en drónarnir sáust á flugvellinum flaug hann aftur frá Þýskalandi. Erfðaefni sem rannsakendur fundu á einum drónanum, sprengiefnum og loftneti sem búið var að koma fyrir í tré nærri flugvellinum, til að styrkja sambandið við drónana, vísaði rannsakendum svo á hinn manninn. Sýnin voru borin saman við önnur sýni frá Litáen og Finnlandi, þar sem þau höfðu verið bendluð við mann frá Belarús sem ber rússneskt vegabréf. Sá mun hafa komist inn í Þýskaland með ítalskri vegabréfsáritun fyrir ferðamenn. Hann hefur áður komið við sögu hjá lögregluembættum víða um Evrópu. Rannsakendur eru sagðir efast um að hægt verði að sækja mennina til saka, nema þeir ferðist aftur til Evrópu en það þykir hæpið. Tala um stigmögnun og heita hörðum viðbrögðum Ráðamenn í Rússlandi hafa brugðist reiðir við ásökunum Þjóðverja. Rússneskir sendiherrar víða í Evrópu hafa verið kallaðir á teppið vegna hinnar meintu árásartilraunar í Leipzig og vegna annarra fjölþáttaógna sem Rússar hafa verið bendlaðir við að undanförnu. TASS-fréttaveitan segir að sendiherra Þýskalands í Rússlandi hafi verið boðaður á fund í utanríkisráðuneytinu í Moskvu. Þangað hafi hann verið fenginn til að útskýra ásakanir Þjóðverja í garð Rússa. Haft er eftir Alexander Grushko, aðstoðarutanríkisráðherra, að Þjóðverjar hafi ákveðið að „feta slóð stigmögnunar“ og að mögulega yrði dregið úr opinberum samskiptum ríkjanna. Í yfirlýsingu á vef utanríkisráðuneytis Rússlands um það að sendiherrann þýski hafi verið kallaður á teppið, segir að Rússar hafni ýktum ásökunum frá Berlín. Þá segir að sú ákvörðun Þjóðverja að loka ræðismannsskrifstofu Rússlands í Bonn og rússnesku menningarsetri í Berlín marki enn eitt skref Þjóðverja í að gera alfarið útaf við opinber samskipti ríkjanna á milli. Enn fremur segir að Rússar muni bregðast við.
Þýskaland Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Tengdar fréttir Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Skotvopn sem höfðu verið grafin í jörðu fundust í skógi nærri Berlín sem þýsk yfirvöld telja að tengist rússnesku leyniþjónustunni. Þýsk yfirvöld reyna að nú að fá einstakling framseldan frá Rúmeníu vegna fundarins. 21. ágúst 2026 15:40 Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Sjálfsprengjudróni sem fannst nærri flugvelli í Þýskalandi er frá Rússlandi samkvæmt bandarískum embættismanni sem þekkir til leynilegrar skýrslu um málið. 8. ágúst 2026 13:49 „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Úkraínska fragtflugvélin sem sjálfsprengidróni fannst við hliðina á á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í gær, var hlaðin skotfærum sem höfðu verið flutt frá Frakklandi og talið er að átti að flytja áfram til Úkraínu. Sprengiefnið sem dróninn bar ku vera öflugt og er notað í hernaði en hvelletan mun hafa verið gölluð. 6. ágúst 2026 13:21 Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í gærkvöldi, við hlið úkraínskrar fraktflugvélar. Fjölmiðlar í Þýskalandi segja að sprengjusérfræðingar hafi staðfest að dróninn hafi borið sprengju en hann er sagður hafa verið gallaður. 5. ágúst 2026 11:43 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Enginn aðdáandi Harry og Meghan Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira
Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Skotvopn sem höfðu verið grafin í jörðu fundust í skógi nærri Berlín sem þýsk yfirvöld telja að tengist rússnesku leyniþjónustunni. Þýsk yfirvöld reyna að nú að fá einstakling framseldan frá Rúmeníu vegna fundarins. 21. ágúst 2026 15:40
Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Sjálfsprengjudróni sem fannst nærri flugvelli í Þýskalandi er frá Rússlandi samkvæmt bandarískum embættismanni sem þekkir til leynilegrar skýrslu um málið. 8. ágúst 2026 13:49
„Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Úkraínska fragtflugvélin sem sjálfsprengidróni fannst við hliðina á á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í gær, var hlaðin skotfærum sem höfðu verið flutt frá Frakklandi og talið er að átti að flytja áfram til Úkraínu. Sprengiefnið sem dróninn bar ku vera öflugt og er notað í hernaði en hvelletan mun hafa verið gölluð. 6. ágúst 2026 13:21
Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í gærkvöldi, við hlið úkraínskrar fraktflugvélar. Fjölmiðlar í Þýskalandi segja að sprengjusérfræðingar hafi staðfest að dróninn hafi borið sprengju en hann er sagður hafa verið gallaður. 5. ágúst 2026 11:43