„Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 3. september 2026 18:07 Ástráður Haraldsson er ríkissáttasemjari. Vísir/Vilhelm Ríkissáttasemjari segir óljóst hvort kjarasamningar Icelandair og flugmanna náist fyrir 15. september eins og stefnt var að. Enn beri mikið á milli og deilan sé snúin. Kaup Icelandair á Play Europe og nýleg svefnkönnun Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjálpi ekki til í viðræðunum.
Um miðjan júní gáfu fulltrúar FÍA og Icelandair út yfirlýsingu þar sem fram kom að stefnt yrði að því að ljúka viðræðum fyrir 15. september og unnið samkvæmt verkstýrðri áætlun ríkissáttasemjara að nýjum kjarasamningi. Ertu bjartsýnn á að flugmenn og Icelandair nái saman fyrir 15. september? „Ég get bara ekki sagt um það en það er enn talsverður tími til stefnu. Við höldum áfram að reyna og leggjum ekki árar í bát. Þetta er ennþá snúin deila þar sem mikið ber á milli,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari. Engin töfrabrögð til Kjaradeilunni var vísað til ríkissáttasemjara í apríl en þá höfðu kjarasamningar verið lausir frá því í lok október á síðasta ári. Síðastliðnar vikur hafi samtalið verið lifandi en þó ekki leitt til niðurstöðu, að sögn Ástráðs. Áfram verði reglulega fundað þangað til sáttir nást. „Það er enginn fundarskortur. Það er ekki hann sem er vandamálið. Við fundum bara þangað til við klárum þetta. Við höldum bara áfram að tala saman um einhvers konar lausn. Það eru engin töfrabrögð til í því,“ segir Ástráður. Ýmis mál flæki mögulega deiluna Kaup Icelandair Group hf. á 49 prósenta eignarhlut í Fly Play Europe Holdco ehf. hafi lítið borið á góma í viðræðum en hafi möguleg áhrif á kjaradeiluna samt sem áður. „Það hefur óskaplega lítið borið á góma. Ég geri samt ekki ráð fyrir því að það hafi endilega gert málið auðveldara,“ segir Ástráður. Þreytukönnun FÍA, þar sem kom fram að rúmur helmingur flugmanna hafi sofnað við störf í sumar, hafi ekki komið upp á fundum en hafi sömuleiðis mögulega einhver áhrif. „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur,“ segir Ástráður.
Flug Icelandair Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira